Frjáls verslun - 01.09.1979, Blaðsíða 53
eftirspurn eftir japönskum bílum er
mjög mikii, bæði vegna verðs,
sparneytni og gæða.“
Við skulum láta þetta nægja um
Japan og snúa okkur næst að
öðrum löndum.
Þess má geta að Lada 2121 var
söluhæsta bifreiðategundin á fyrri
hluta þessa árs en þá höfðu selst
414 bílar af þeirri tegund. Síðan
komu Lada 2106 og Lada 2103 í 6.
og 7. sæti yfir mest seldu bifreiða-
tegundirnar.
Bandaríkin
Mikill samdráttur hefur orðið í
innflutningi bifreiða frá Bandaríkj-
unum, því að á fyrrihluta síðasta
árs (jan.—júní) var alls flutt inn 741
bifreið frá Bandaríkjunum, af 30
tegundum, en á þessu ári hafa
aðeins verið fluttar inn 436 amer-
ískar bifreiöar, af 33 tegundum,
yfir sama tímabil. Þrátt fyrir þetta
var gott hljóð í Bjarna Ólafssyni hjá
Sambandinu og sagði hann að
véladeild Sambandsins sem ásamt
fleirum flytur inn bíla frá Banda-
ríkjunum, hefði ekki orðið vör við
samdrátt að verulegu leyti ennþá.
„Reyndar er minni hreyfing í
gömlu bílunum og jeppunum en
eftirspurn eftir litlu bílunum, sem
við erum með, hefur aukist."
Önnur lönd
í þriðja sæti á listanum okkar
kemur síðan Svíþjóð en þaðan
voru fluttar inn 299 nýjar fólksbif-
reiðar á tímabilinu jan.—júní á
þessu ári. I' fyrra var samsvarandi
tala 377 þannig að heldur virðist
hafa dregið úr innflutningi þaðan.
Árni Filippusson hjá Velti, sem
hefur umboð fyrir Volvo-bifreiðar
hérlendis, sagði að ástandið hjá
þeim væri þannig að þeir stæðu á
milli árgerða. Síðustu bílarnir af
árgerð 1979 væru að fara út en
árgerð 1980 væri ekki komin. ,,Það
er þó nokkuð af pöntunum fyrir-
liggjandi en reynslan hefir sýnt að
pantanir koma ekki að ráði fyrr en
sýningarbílar eru allavega komn-
Sovétríkin
Á síðasta ári var flutt inn 721
fólksbifreið frá Sovétríkjunum en
aðeins af 5 tegundum. Þessi tala
skipar landinu í annað sætið í list-
anum yfir fjölda innfluttra bifreiða
hingað frá einstökum erlendum
ríkjum. Innflutningurinn hefur svo
að segja staðið í stað því að sam-
svarandi tala frá fyrra ári var 727.
Einar Þórir hjá Bifreiðum og land-
búnaðarvélum sagði að ekki væri
hægt að tala um samdrátt en þó
hefðu færri bílar verið seldir í ágúst
á þessu ári en í sama mánuði í
fyrra.
„Samkvæmt okkar bókum er
ekki um neinn samdrátt að ræða á
innflutningi Lada-bifreiða fyrir
tímabilið jan.—júní,“ sagði Einar.
Á tímabilinu jan.—júní 1979, var mest tollafgreitt af eftir- töldum bílategundum:
1. Lada 2121 414 bílar
2. Volvo 244 229 bílar
3. Subaru 1600 186 bílar
4. Mazda 323 138 bílar
5. Mazda 929 133 bílar
6. Mazda 626 132 bílar
7. Lada 2106 118 bílar
8. Lada 2103 109 bílar
9. Ford Fiesta 97 bílar
10. Daihatsu Charade 92 bílar
11. Trabant 92 bílar
53