Frjáls verslun - 01.09.1979, Side 59
Drepur hækkun hrágæranna
þennan viðkvæma markað?
Jón Arnþórsson sýnlr okkur stoltur tramlelðsluvöru Sklnnu. Slíkar
flíkur eru af mjög klassísku sniði, enda dýrar og á fárra færi að kaupa
slíkt nema sjaldan á ævlnni.
„Við erum að þessu til þess að
fullvinna vöru bændanna," sagði
Jón Arnþórsson, forstjóri Sauma-
stofu Sambandsins á Akureyri. I
hinni nýju verksmiðju Iðnaðar-
deildar SÍS er framleidd einhver
allra dýrasta iðnaðarvaran okkar
og góð útflutningsvara.
Jón segir að það hafi verið 1923
sem Samband íslenzkra sam-
vinnufélaga hóf að ,,rota‘‘ skinnin
sem kallað var. Það var eljumað-
urinn Þorsteinn Davíðsson sem
var frumkvöðullinn að þessari sút-
un. ,,Og ekki fær hann fálkaorð-
una fyrir slíkt," sagði Jón Arn-
þórsson.
Starfsemi sútunarmanna óx
hröðum skrefum. Eftir brunann
mikla í verksmiðjunum 1969 var
byggt upp frá grunni. Þá var
ákveðið að sérhanna flíkur úr
mokkaskinnum, láta holdrosann
snúa út, en hlýja ullina inn. Þetta
var eiginlega vísirinn að fataiðnaði
Heklu, svokölluðum mokkasaumi.
Mest selt innanlands
I dag heitir þetta Skinnastofa
Sambandsins, — Skinna. Það eru
tvö ár liðin frá því að Skinna tók við
framleiðslunni og gerðist sjálf-
stætt fyrirtæki innan Iðnaðar-
deildar SÍS.
Vörur Skinnu hafa náð miklum
vinsældum erlendis, ekki hvað síst
á Norðurlöndunum. Einnig er mik-
ið selt til Sovétríkjanna og reyndar
víðar. Mest er þó salan innan-
lands.
Nú gerðist það í haust að
ákveðin var gífurleg hækkun á
hrágærum, eða 135%. Jón Arn-
þórsson kvað þetta ástand gjör-
samlega óviðunandi, fyrirsjáan-
legt væri hrun hjá verksmiöjum,
sem framleiða þessar vörur. Sem
dæmi nefndi hann að mokkaflík
sem í dag kostar 230 þúsund,
mundi hækka um 50%, eða nálg-
ast 350 þúsund krónur. Það gæfi
auga leið aö þetta yrði algjört rot-
högg fyrir verksmiðjurnar.
„Þetta er þeim mun alvarlegra
þar sem verið er að byggja upp
markaðinn, m.a. með umboðs-
mannakerfi í Kanada og Banda-
ríkjunum og víðar. Þetta mál verð-
um við að fá leyst þannig að það
verði báðum til sóma," sagði Jón.
59