Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1979, Side 69

Frjáls verslun - 01.09.1979, Side 69
Við spurðum Gísla hvort þar'na væri verið að undirbúa komu er- lendra olíufursta og auðmanna. Hann kvaðst viss um að Akureyr- ingar mundu taka á móti þeim jafn vel og öðrum sem þangað kæmu. Þeyst eftir Mývatnsrúnti Gísli sagði í því sambandi að skipakomur í sumar hefðu verið óvenju miklar og yrðu á næsta sumri jafnvel enn meiri. Ferða- mannaskip komu 5 sinnum. Ekki var Gísli alls kostar ánægður með þá dagskrá, sem ferðafólkinu er boðið upp á, þ.e. Mývatnsrúntinn svokallaða. Hann kvaðst hafa aðr- ar hugmyndir um þaö hvernig hafa ætti ofan af fyrir gestunum og kvaðst vilja lengja viðdvölina, sem til þessa hefur aðeins verið 4 tímar. Mývatnsferðin ásamt tilheyrandi mat í Reynihlíð væri því þeysi- sprettur frá upphafi til enda. Við spurðum Gísla um hótelmál höfuðstaðar Norðurlands. Hann viðurkenndi að þar væri komið við kviku. í rauninni væri ekkert boðlegt hótel lengur á Akureyri. Hótelið á Húsavík virtist hafa mun meira aðdráttarafl fyrir ráðstefnur og mannamót en hótelin þrjú á Akureyri og væri það e.t.v. ekki erfitt að skilja. Kvaðst Gísli hafa heyrt að KEA-menn hugsuðu sér til hreyf- ings. Stækkun og endurbætur á Hótel KEA stæðu nú fyrir dyrum. Hinsvegar hefði enn sem er ekkert verið staðfest af þessum orörómi. Þaö væri þó óskandi að úr yrði bætt og það sem allra fyrst. Hlíðarfjallið orðið að alþjóðlegum skíðastað Hótel KEA stækkar f gestamóttöku Hótel KEA ,,Það er ekkert launungarmál aö stækkun og endurbætur á hótelinu eru í meðferð og hug- myndir okkar hafa verið kynnt- ar í bygginganefnd Akureyrar," sagði Sigurður Jóhannesson, aðstoðarforstjóri Kaupfélags Eyfiröinga á Akureyri í viötali við FV. Siguröur kvaðst verða að játa að nú væri svo komið að hótel- rými á Hótel KEA væri orðið of lítið og fullnægði e.t.v. ekki kröfum tímans. Hann kvað stækkunina og breytingar tengjast því að nú er mjólkursamlag KEA að flytja úr Gilinu í mikla nýbyggingu. Áætlað er að flutningum verði endanlega lokið um eða upp úr áramótum næstkomandi. Þá mun Brauðgerð KEA flytja úr núverandi húsnæði suður af hótelinu í gamla mjólkurbúið. Ætlunin er semsé að nýta það húsnæði sem brauögerðin hefur í dag. Hákon Hertervig og Tieknistofa SÍS hafa nú með höndum tillögugerð um nýt- ingu húsnæðis brauðgerðar- innar fyrir hótelið. Hákon kvaðst nú vera að enudrskoða tveggja ára gamalt plan um stækkun þessa. Hann kvaðst ekki geta á þessu stigi málsins geta sagt um hvað gert yrði, en rætt væri um að leggja í einn áfanga verksins nú í vetur. 69

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.