Frjáls verslun - 01.09.1979, Qupperneq 91
er átt með þessu er, að oft reynist
það mun betri lausn að setja
hávaðasamar vélar saman á ein-
um stað í stað þess að dreifa þeim
yfir flötinn, gagnstætt því sem
margur myndi ætla verða minni
óþægindi af hávaða á þann hátt.
Til þess að draga úr bergmáli er
oft gripið til þess ráðs að klæða
veggi með mjúkum efnum, þessi
efni mega ekki vera þess eðlis aö
þau dragi til sín ryk. Til þess að
minnka hávaða og bergmál eru
loft iðulega niðurtekin og þá með
einföldum hljóðgildrum úr spóna-
plöturenningum, sem um leið geta
verið skreyting. Gólfteppi draga úr
hávaðamögnun. Þarsem gólfteppi
henta ekki er hægt að nota sér-
stakar vinyl-gólfflísar, sem eru
þannig gerðar að þær deyfa hljóð.
Ekkert loftræstikerfi ætti að
setja uþp fyrr en sérfræðingur
hefur gert ráðstafanir til þess að
það sé hljóðdeyft.
Litir
Nú er það að sjálfsögðu svo að
litavali stjórnar mismunandi
smekkur fólks. Það kemur þó
mörgum á óvart, að litir í atvinnu-
húsnæði lúta ákveðnum og viður-
kenndum reglum. Með lit, alveg á
sama hátt og með tónlist, er hægt
að skapa ákveðið andrúmsloft.
Litur getur verið hvetjandi, róandi,
heitur, kaldur, hlutlaus, niður-
drepandi og jafnvel kauphvetj-
andi. Eins er hægt að fá fram
ákveðin æskileg áhrif með því að
tefla saman tveimur eða fleiri lit-
um. Svo einhver dæmi séu nefnd
getum við tekið skurðstofu eða
kjötvinnslu. I báðum tilvikum er
hreinlætiö undirstrikað með hvítu
eða Ijósbláu, hreint og kalt.
Hvíldarherbergi eru yfirleitt höfð í
grænum lit, enda er grænt róandi.
Diskótek er gjarnan haft
svart/hvítt/silfur/ og rautt og með
því að bæta flökkuljósum við má
tryggja að þar inni veröi flestir
þandóðir. Þægilegasta og jafn-
framt virkasta vinnuumhverfið er í
gulu, orange og brúnu, ungt fyrir-
tæki á uppleið notar gjarnan rautt í
stað orange til að verka drífandi.
Þannig mætti lengi telja. Þótt farið
sé eftir þessum staðreyndum fer
því fjarri að smekkur fólks geti ekki
fengið að njóta sín, aðalatriðið er
að litirnir séu notaðir í þágu mark-
miða.
Lýsing
Lengi hafa verið skiptar skoð-
anir um það meðal sérfræðinga
hvort sé betra, staðbeind vinnu-
lýsing eða jöfn lýsing yfir allan
flötinn. Orkukreppan hefur leitt til
þess að flestir aðhyllast sérhann-
aða lýsingu enda hefur iðulega
komið í Ijós að atvinnuhúsnæði
hefur verið yfirlýst allt að 90%
miðað viö þær kröfur sem nú eru
upþi. Ljómun lampa er mæld í L/W
(Lumen/wött). Til viðmiðunar er
Ijómun venjulegra flúrlampa
53—78 L/Q, kvikasilfurslampa
36—53 L/W og HID lampa 76—
125 L/W (High-intensity dis-
charge).
Lýsingaþörf eftir orkukreppuna
er talin vera sem næst:
— Vinnuborð 7o ftcd (foot-
candles)
— Hliðarrými 50 ftcd
— Göng 10 ftcd
Þessar tölur koma í stað
70—150 ftcd sem áður giltu, þ.e.
áður en farið var að sérhanna lýs-
ingu fyrir ákveðnar aðstæður.
Þessi lýsing er ,,bein“ þ.e. hvert
vinnuborð er sérstaklega lýst. Það
ber þó að hafa í huga að slík lýsing
hentar ekki á öllum skrifstofum.
T.d. þar sem fólk er mikið á hreyf-
ingu, t.d. við afgreiðslu, hentar
hún alls ekki. Þar þarf lýsing að
vera ,,óbein“, — jöfn yfir flötinn og
mun meiri.
r-------------------------
Canon NP50, sem Skrifvélin h.f. flytur inn.
Fyrirtækið Skrifvélin h.f. er nú um þessar mundir að fara af
staö með kynningu á nýrri gerð Ijósritunarvélar. Þessi Ijósrit-
unarvél er að því leytinu frábrugðin mörgum gerðum eldri Ijós-
ritunarvéla, að hún notar venjulegan paþpír, en sem kunnugt er
þurfa flestar tegundir Ijósritunarvéla sérstakan pappír og getur
það oft haft í för með sér ýmis konar vandræði og tafir.
Þessi nýja Ijósritunarvél er af gerðinni Canon NP 50 og er
verð hennar um 1800 þúsund krónur.
Vélin hefur veriö á markaðnum í Evrópu í um tvö ár og er á
góöri leið með að verða söluhæsta vélin þar. Kostir hennar eru
margir. Hún er mjög fyrirferðarlítil miðað við sambærilegar
Ijósritunarvélar, bilanatíðni hennar er miklu minni en í eldri
Ijósritunarvélum og hún þarfnast minna eftirlits. Hún er auðveld
í allri notkun og síðast en ekki síst að hún prentar á venjulegan
pappír í stærðunum A6—B4 og allt þar á milli. Hún Ijósritar
einnig á glærur og litaðan pappír.
Það er eins og áður sagði fyrirtækið Skrifvélin h.f. sem hefur
umboð fyrir Canon NP 50, en framkvæmdastjóri fyrirtækisins er
Örn Jónsson.
91