Frjáls verslun - 01.07.1988, Page 41
vinnustöðin virðist vera hluti af
móðurtölvunni þegartengingin er
virk. Tengingar við gagnanet
(X.25, X.28 og X.400)verða brátt
algengar hér á landi sem annars
staðar.
Notendur stakra tölva geta
komist í samband við netkerfi
fyrirtækja um síma og þar með
hafa þeir alla tengimöguleika
netsins heima hjá sér. Notendur
nets geta tengst millitölvum með
margvíslegum hætti án þess að
verða þess raunverulega varir í
vinnslunni á hvern hátt slík tengsl
eru.
Með því að nota netkerfi sem
hefur gátt (Gateway) yfir í milli-
tölvu má hægt og bítandi skipta
millitölvukerfi út fyrir net. Netkerf-
ið er sett upp samhliða millitölv-
unni, notendur vinna ritvinnslu,
töflureikna o.þ.h. á sínar einka-
tölvur og nota skjáherma til að
tengjast t.d. bókhaldi í millitölv-
unni. Með þessu móti má gang-
setja nýtt bókhaldskerfi sem
byggist á netnotkun án þess að
leggja eldra kerfi fyrr en nýja kerf-
ið telst nægilega öruggt. Líftími
millitölvunnar lengist vegna þess
að verk sem gjarnan eru millitölv-
um þung flytjast á einkatölvurnar.
En nú eru líka að fæðast aðrar
lausnir.
Novell kynnti nýlega NetWare/
VMS sem keyrir á DEC VAX tölv-
um. Með NetWare/VMS er VAX
tölvan orðin netmiðstöð og eru
notendur stöku tölvanna þá með
aðgang að sameiginlegum eigin-
leikum hennar. Stjórnandi VAX
tölvunnar sér hins vegar skrár PC
tölvanna sem VMS skrár. Not-
andi getur fengið sama notanda-
heiti og lykilorð á netið og hann
hefur á VAX tölvunni.
ERFIÐLEIKAR HJÁ
FRAMLEIÐENDUM MILLITÖLVA
Þegar framtíðarmöguleikar
heilla kerfa eins og hér hefur verið
lýst eru metnir verður að líta til
margra átta. Það er ekki nóg að
tæknimennirnir segi sitt álit, það
verður einnig að horfa til markað-
arins og fjármálamannanna til að
fá samanburð. Tiltrú fjármála-
mannanna á möguleika er einatt
talin endurspeglast í hlutabréfa-
markaðinum, því menn fjárfesta
aðeins í þeim fyrirtækjum (og þar
með markaðsmöguleikum) sem
talin eru vera vænleg til framtíðar-
innar.
41