Frjáls verslun - 01.03.1989, Page 10
FRETTIR
SIGURÐUR HELGASON A AÐALFUNDI FLUGLEIÐA:
DREIFÐARIEIGNARAÐILD ÆSKILEG
Stórar tölur settu svip
sinn á aðalfund Flugleiða
sem haldinn var 21. mars.
Vegna söluhagnaðar á
flugvélum félagsins varð
hagnaður ársins 806
milljónir króna og bók-
færð eiginfjárstaða er
komin í 2,2 milljarða
króna og hefur aldrei
verið betri. A síðustu 2
árum hefur hagnaður af
sölu fjármuna numið
1300 milljónum.
Gífurlegar fjárfesting-
ar eru framundan hjá
Flugleiðum, eða um 12
milljarðar í flugvélum og
1 inilljarður vegna flug-
skýlis og endurnýjunar
hótela félagsins. Þá er
innanlandsflugflotinn
alveg eftir.
Vegna stóraukinna
skuldbindinga var ákveð-
ið að hefja sölu á viðbót-
arhlutafé í félaginu.
Fundurinn samþykkti
150 millj. kr. nýtt hluta-
fjárútboð sem selt verður
á yfirverði í samræmi við
Sigurður Helgason.
markaðsaðstæður. Sig-
urður Helgason stjórnar-
formaður lét þess getið í
ræðu sinni að hann hefði
viljað ganga mun lengra í
sölu á nýju hlutafé en
samstaða hafi ekki tekist
nú um stærra skref. Sig-
urður taldi að æskilegt
hefði verið að fá heimild
þessa aðalfundar til
hlutafjárútboðs að fjár-
hæð 650 milljónir króna
sem ráðstafað hefði verið
á þremur árum. Sigurður
lét í ljós þá skoðun að
hlutafjáreign í félaginu
þyrfti að vera dreifðari og
æskilegt væri að fjölga
hluthöfum. Hann benti á
VERSLUNARBANKINN:
BÝÐUR MÖNNUM í VINNINGSLIÐIÐ
Verslunarbankinn hef-
ur kynnt nýtt markaðs-
átak þar sem viðskipta-
mönnum bankans er boð-
ið í Vinningsliðið.
Bankinn hefur að und-
anförnu lagt áherslu á
sérstöðu. Menn hafa orð-
að það svo að samanborið
við sumar aðrar innlán-
astofnanir sé Verslunar-
bankinn smár - en hann
sé engu að síður knár.
Markaðsgreining hófst
útlánamegin þegar bank-
inn tók upp kjörvexti og nú
er komið að innlánshlið-
inni þar sem viðskiptavin-
um sem uppfylla viss skil-
yrði eru boðin hlunnindi
Vinningsliðsins sem felast
m.a. í tiltekinni yfirdrátt-
arheimild, fríum tékkheft-
um, fríu greiðslukorti og
beinni persónulegri þjón-
ustu svonefnds liðsmanns
auk fleiri hlunninda.
Nú þegar munu um
2000 viðskiptavinir
bankans uppfylla skilyrði
til að vera í Vinningslið-
inu.
Það mun vera um eitt
ár síðan tæknilegur und-
irbúningur hófst innan
bankans fyrir þetta mark-
aðsátak sem unnið er
undir forystu Tryggva
Pálssonar bankastjóra en
fjöldi starfsmanna og
stjórnenda bankans í
ýmsum deildum hefur
tekið þátt í undirbúning-
að Flugleiðir væru þjón-
ustufyrirtæki allra lands-
manna í viðkvæmri starf-
semi sem þyrfti á öllu
öðru að halda en stimpli
einokunar.
AÆTLANA-
MISTÖK
Þegar fjárlög ríkisins
fyrir árið 1988 voru af-
greidd var gert ráð fyrir
tekjuafgangi. En hvað
hefur komið á daginn.
I byrjun september
1988 boðaði Jón Baldvin
Hannibalsson þáverandi
fjármálaráðherra að fjár-
lagahallinn yrði 700 mill-
jónir.
Um miðjan október
sagði nýr fjármálaráð-
herra, Ólafur Ragnar
Grímsson, að fjárlagahall-
inn yrði 3000 milljónir.
Upp úr miðjum nóvem-
ber taldi Ólafur Ragnar
að hallinn stefndi í 5000
milljónir króna.
I desember var opin-
beruð áætlun um 6500
milljón króna halla.
í febrúarbyrjun 1989
gaf ráðuneyti fjármála út
enn eina áætlun þar sem
fjárlagahallinn var kom-
inn í 7200 milljónir
króna.
Loks upplýstu stjórn-
völd þann 9 mars sl. að
nýjustu tölur um fjárlaga-
halla sýndu 7700 milljón-
ir króna. Þá hafði fjár-
lagahallinn 11 faldast frá í
september.
Ætli þetta sé það sem
kallað er „festa í ríkis-
fjármálum"?
10