Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1989, Side 30

Frjáls verslun - 01.03.1989, Side 30
HONNUN Myndmál umbúðanna kemur í stað orða sölumannsins. KRISTÍN ÞORKELSDÓTTIR: HVAÐ SELUR? HVER SELUR? Á íslandi er neysluvara yfirleitt seld í stórmarkaðsumhverfi. Þar er enginn sölumaður lengur til að selja, upplýsa og afgreiða. Umbúðirnar hafa tekið við hlutverki sölumannsins. Þær þurfa að kalla á athygli, vekja löngun og gefa upplýsingar, mæla og skammta, fyrir utan hið hefðbundna hlutverk að vernda vöruna á leið sinni frá framleiðanda til neytanda. Oft eru matvöruumbúðir hluti af borðbúnaði neytandans og stundum eru þær ílát til að drekka eða borða úr. Ég ætla að takmarka þessa umfjöllun við sölu- hlutverk umbúða. Neytandinn tekur lokaákvörðun um innkaup sín á sölustað en það er ekki tilviljunum háð hvaða vöruteg- und lendir í innkaupakörfunni. Að- dráttarafl umbúðanna er afgerandi Kristín Þorkelsdóttir. þáttur við ákvörðunartöku neytand- ans, ásamt því hvort og hvernig varan hefur verið auglýst. Hér á landi eru litlir auglýsinga- möguleikar á þeim stað þar sem lokaákvörðun um kaup eru tekin, þ.e. í versluninni sjálfri eða í nágrenni hennar. Því hlýtur athyglin að beinast að umbúðunum sjálfum. Á undanfömum árum hefur stærð umbúðaeininga farið minnkandi. Framboð á einmenningsskömmtum hefur aukist og stærri umbúðir taka mið afþvíað færri eru í fjölskyldum nú en áður. Á sama tíma þarf aukið pláss á umbúðum fyrir neytendaupplýsing- ar og strikamerki. Minnkun umbúða- eininga og krafa um aukið upplýsinga- magn gengur því í síauknum mæli á það pláss sem þarf til að gefa vörunni 30

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.