Frjáls verslun - 01.03.1989, Page 30
HONNUN
Myndmál umbúðanna kemur í stað orða sölumannsins.
KRISTÍN ÞORKELSDÓTTIR:
HVAÐ SELUR? HVER SELUR?
Á íslandi er neysluvara yfirleitt
seld í stórmarkaðsumhverfi. Þar er
enginn sölumaður lengur til að selja,
upplýsa og afgreiða. Umbúðirnar hafa
tekið við hlutverki sölumannsins.
Þær þurfa að kalla á athygli, vekja
löngun og gefa upplýsingar, mæla og
skammta, fyrir utan hið hefðbundna
hlutverk að vernda vöruna á leið sinni
frá framleiðanda til neytanda. Oft eru
matvöruumbúðir hluti af borðbúnaði
neytandans og stundum eru þær ílát
til að drekka eða borða úr. Ég ætla að
takmarka þessa umfjöllun við sölu-
hlutverk umbúða.
Neytandinn tekur lokaákvörðun
um innkaup sín á sölustað en það er
ekki tilviljunum háð hvaða vöruteg-
und lendir í innkaupakörfunni. Að-
dráttarafl umbúðanna er afgerandi
Kristín Þorkelsdóttir.
þáttur við ákvörðunartöku neytand-
ans, ásamt því hvort og hvernig varan
hefur verið auglýst.
Hér á landi eru litlir auglýsinga-
möguleikar á þeim stað þar sem
lokaákvörðun um kaup eru tekin, þ.e.
í versluninni sjálfri eða í nágrenni
hennar.
Því hlýtur athyglin að beinast að
umbúðunum sjálfum.
Á undanfömum árum hefur stærð
umbúðaeininga farið minnkandi.
Framboð á einmenningsskömmtum
hefur aukist og stærri umbúðir taka
mið afþvíað færri eru í fjölskyldum nú
en áður. Á sama tíma þarf aukið pláss
á umbúðum fyrir neytendaupplýsing-
ar og strikamerki. Minnkun umbúða-
eininga og krafa um aukið upplýsinga-
magn gengur því í síauknum mæli á
það pláss sem þarf til að gefa vörunni
30