Frjáls verslun - 01.05.1990, Page 2
UGLYSINGADEILD SAMBANDSINS
FROSIÐ - FERSKT - KÆLT
Sífellt haerri kröfur inn- og útflutningsmarkaðarins um bætta meðferð og geymslu matvæla hefur leitt til mikilla
breytinga í nær öllum flutningsþáttum þeim tengdum.
Skipadeild Sambandsins hefur frá upphafi verið stór þátttakandi í flutningum matvæla — fyrstu áratugina
mestmegnis í flutningi frystra vara en á síðari árum hefur hún sinnt í æ ríkari mæli flutningum á ýmsum
ferskum og kældum matvælum, bæði fyrir innanlandsmarkað svo og útflutningsatvinnuvegina.
Slíkir flutningar eru all frábrugðnir öðrum flutningum og kalla á aukið og nákvæmara eftirlit svo og fullkomnari
og flóknari tæki en vel flestur annar varningur. Til þess arna hefur Skipadeildin yfir að ráða fullkomnustu
tækjum sem völ er á í dag. Má þar jafnt nefna skip, gáma og geymslur,
auk annarra tengdra þátta í flutningaþjónustunni.
Vikulega flytur Skipadeildin t.d. fyrir viðskiptaaðila okkar u.þ.b. 1100 tonn af freðfiski og 600 tonn af ísuðum
fiski frá höfnum landsins til hinna ýmsu markaða erlendis. Þá sjáum við um innflutning á fersku, kældu og
frystu grænmetiog ávöxtum sem samsvararu.þ.b. 20 til30gámaeiningumí vikuhverri.
Fullyrða má að íslenskir inn- og útflytjendur mundu ekki treysta okkur fyrir flutningum á svo verðmætri og
viðkvæmri vöru ef þeir hefðu ekki fulla vissu fyrir því að hjá okkur er vara þeirra í öruggum höndum - vissu
sem byggist á reynslu þeirra.
Flytur þú inn ávexti sem eiga að flytjast við t.d. 4-12,5 gráður eða grænmeti í 10 gráðu hita alla leið?
Ert þú útflytjandi freðfisks sem skal flytja í 26 gráðu frosti?
Þarftu að koma ísuðum fiski í einangruðum gámi fljótt og örugglega á markað erlendis?
Ekkert stórmál. - Sláðu á þráðinn til okkar í Skipadeild og láttu okkur sjá um þetta. Auk fullkomins skipastóls
höfum við í okkar rekstri milli 600 og 700 frysti- og kæligáma af öllum gerðum og stærðum - auk sérþekkkingar
í faginu og persónulegrar þjónustu sem er okkar aðalsmerki.
Allar nánari upplýsingar veitir starfsfólk Sölu- og markaðsdeildar í síma 698300.
SKIPADEILD
SAMBANDSINS
Sambandshusmu Kirk/usandi 105 Reykjavik
Simi 191I 698300 Telex 2101 Telefax 1911 678151
VERÐUGUR VALKOSTUR