Frjáls verslun - 01.05.1990, Qupperneq 16
FRETTIR
Magnús Hreggviðsson og sonur hans taka fyrstu
skóflustunguna.
SMÁRAHVAMMUR:
GATNAGERÐ ÍBÚÐABYGGÐAR HAFIN
KAUP RÍKISINS Á
ÍSLENSKUM
AÐALVERKTÖKUM:
SAMNINGAR
GANGA HÆGT
Eftir síðustu áramót
hófust formlegir samn-
ingar um að ríkissjóður
kaupi verulega aukinn
hlut í Islenskum aðal-
verktökum. Einkum mun
SÍS hafa verið þess fýs-
andi að af þessu gæti orð-
ið þannig að þeir fengju
með því verulega fjár-
muni inn í reksturinn.
Talið er að fjórðungshlut-
ur SIS geti verið eins til
tveggja milljarða virði,
en hann er í vörslu eign-
arhaldsfélagsins Regins
hf.
Heyrst hefur að samn-
ingaumleitanir þessar
gangi mjög treglega og
munu ýmsir vera orðnir
svartsýnir á að samning-
ar náist. Sú hugmynd
mun hafa verið rædd að
hætta að eyða orku í
samningaviðræður en
greiða þess í stað eigend-
unum stóraukinn arð.
Þannig gætu hundruðir
milljóna króna komið í
kassa Sambandsins strax
— án nokkurra samn-
ingaviðræðna.
TRYGGING HF.:
EIGIÐ FÉ
Samkvæmt ársreikn-
ingi Tryggingar hf. fyrir
árið 1989 námu heildar-
iðgjöld félagsins 317 mill-
jónum króna sem er 29%
aukning frá árinu á und-
an. Hagnaður samkvæmt
rekstrarreikningi var 5.6
milljónir króna.
Bókfært eigið fé í árs-
lok nam 92 milljónum
króna en var 86.4 mill-
jónir í árslok 1988 og
Magnús Hreggviðsson,
stjórnarformaður Frjáls
framtaks hf., tók fyrir
skömmu fyrstu skóflu-
stungu vegna gatnagerð-
ar í íbúðabyggð Smára-
hvamms í Kópavogi. Á
íbúðasvæði Frjáls fram-
taks er gert ráð fyrir um
500 íbúðum en íbúar í
Smárahvammi verða alls
um 2000.
Frjáist framtak keypti
sem kunnugt er um 18
hektara lands í Smára-
hvammi þar sem annars
vegar mun rísa atvinnu-
rekstrarhverfi, samtals
um 50.000 fermetrar, en
hins vegar íbúðabyggð.
Gatnagerð atvinnusvæð-
isins er langt á veg komin
en í sumar verður lokið
við malbikun gatna.
RÝRNAR
hafði því aukist í krónum
um 6.4% sem er talsverð
raunrýrnun. Verðbreyt-
ingarstuðull ársins var
22.24% og hefði eigið fé
félagsins því þurft að vera
um 106 milljónir króna í
árslok til að halda verð-
gildi sínu. Þannig hefur
bókfært eigið fé félagsins
rýrnað í raun um 14 mill-
jónir króna á árinu 1989.
Frjálst framtak hefur
látið skipuleggja íbúða-
hverfið í samvinnu við
Kópavogskaupstað.
Skipulagsarkitekt er
Ormar Þór Guðmunds-
son. Ibúðahverfið rís í
dalbotninum fyrir austan
væntanlegan skóla og
íþróttahöll sem mjög hef-
ur verið í fréttum að und-
anförnu.
Hagvirki hf. mun sjá
um gatnagerð á íbúða-
svæðinu en fyrirtækið
hefur einnig annast
gatnagerð á atvinnu-
rekstrarsvæðinu. Lokið
verður við malbikun
gatna á næsta ári.
Frjáist framtak hf. hef-
ur nú lokið við að selja
70% af öllum lóðum undir
raðhús og fjölbýlishús
sem fyrirhugað er að
selja. Byggingafram-
kvæmdir hefjast á hausti
komanda og er gert ráð
fyrir að byggingu hverfis-
ins ljúki á 5 árum.
Atvinnuþróunarsj óður
Suðurlands gengst fyrir
sýningu á Selfossi dagana
23.júní til l.júlí nk. til
kynningar á starfsemi
sunnlenskra fyrirtækja
og þjónustustofnana.
Um 50 fyrirtæki og
SANITAS:
ÚTLENDINGUM
BOÐIN
EIGNARAÐILD
-EN ÞEIR AFÞÖKKUÐU
Heimildir blaðsins
herma að Páll G. Jónsson,
eigandi Sanitas og Pólar-
is, hafi fyrir nokkru verið
á ferð erlendis og leitað
eftir nýju fjármagni inn í
rekstur fyrirtækja sinna.
Hinir erlendu aðilar
munu hafa sýnt málinu
talsverðan áhuga og
ákveðið að bregðast
skjótt við og senda sér-
fræðinga til Islands til að
gera úttekt á því hversu
áhugavert málið kynni að
vera.
Skemmst er frá því að
segja að hingað munu
hafa komið sérfræðingar
á vegum þessa fyrirtækis
og kynnt sér rekstur
Sanitas, markaðsmögu-
leika fyrirtækisins og
ekki síst fjárhagsstöðu
þess. Þeir munu ekki
hafa staðnæmst lengi hér
á landi en snúið til sinna
heima og lagt fyrir niður-
stöður sínar.
Strax í kjölfarið munu
hafa komið boð um að
fyrirtækið hefði ekki
áhuga á að leggja fram
hlutafé í þetta íslenska
fyrirtæki.
stofnanir hafa tilkynnt
þátttöku í sýningunni
sem ætlað er að verði
með fjölbreyttu sniði.
Sýningin verður haldin í
Fjölbrautaskóla Suður-
lands á Selfossi.
SÝNING Á SELFOSSI
16