Frjáls verslun - 01.05.1990, Síða 26
FORSIÐUGREIN
FRAKKLANDSMARKAÐUR
BLÓMSTRAR
- RŒTT VIÐ PÉTUR EINARSSON, SÖLUSTJÓRA SH í PARÍS
Pétur Einarsson, sölustjóri SH í París.
Gífurleg aukning hefur orðið á
útflutningi Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna til Frakklands á
síðustu misserum. A síðasta ári
flutti SH út 13.900 tonn til Frakk-
lands sem var um 83% aukning frá
árinu 1988. Utflutningsverðmæt-
ið nam tæpum tveimur milljörðum
króna. Þar með er Frakkland kom-
ið í þriðja sætið hjá SH. Einungis
Bandaríkin og Japan eru stærri. í
fyrra fóru 27.300 tonn frá SH til
Bandaríkjanna og 19.000 tonn til
Japan.
Fyrir nokkrum árum hefðu fáir
átt von á að Frakkland yrði stærra
útflutningsland hjá SH en Sovét-
ríkin og Bretland.
Franski markaðurinn hefur vaxið
mjög hratt. Árið 1980 flutti SH 2.825
tonn þangað, 5.281 tonn árið 1985 og
7.732 tonn árið 1988. Þannig hefur út-
flutningurinn þangað nær fimmfaldast á
tæpum áratug.
Heildarútflutningur SH á sl. ári nam
um 96 þúsund tonnum sem var 21%
magnaukning og 42% verðmætaaukn-
ing í krónum saman borið við árið á
undan. Heildarverðmæti útflutningsins
SH var um 15 milljarðar króna sem er
um helmingur alls útflutnings frystra
sjávarafurða frá íslandi árið 1989 og um
fjórðungur alls sjávarafurðaútflutnings
landsmanna.
Um 89% útflutnings SH fór til 6
landa. Langmest söluaukning varð í
Frakklandi. Sölumiðstöð hraðfrystihús-
anna rekur söluskrifstofu í París þar
sem Lúðvík B. Jónsson er fram-
kvæmdastjóri og Pétur Einarsson söl-
ustjóri. Skrifstofan tók til starfa í Frakk-
landi árið 1988. Ritstjóri Frjálsrar versl-
unar hitti Pétur að máli í París til að for-
vitnast um markaðsstarfið í Frakklandi.
„Við seljum hér einkum fryst flök af
þorski, grálúðu, karfa, ufsa og steinbít
og ferskan lax. Franski markaðurinn er
auk þess mjög sterkur fyrir aukaafurðir.
Þar má nefna löngu, keilu, tindabikkju
og þorskhrogn. Hér og á Spáni höfum
við einnig fengið gott verið fyrir sfld,
hörpudisk og humar.
Hér er mikil samkeppni í gæðum og
verðum og innflytjendur á þessum
markaði berjast hart um góða viðskipta-
vini. Slík samkeppni hefur þó yfirleitt
ekki leitt til verðlækkunar hjá okkur.
Það má e.t.v. nefna þijár ástæður: í
fyrsta lagi er vöruúrval okkar það breitt
og framleiðslugeta okkar það mikil að
viðskiptasambönd okkar eru mjög
sterk. í öðru lagi, og þar er kannski einn
helsti kostur sölukerfis SH, þá getum
við alltaf einbeitt okkur að öðrum mörk-
uðum ef um er að ræða langvarandi
verðmismun. í þriðja lagi geta sölusam-
tök eins og SH frekar átt tímabundnar
birgðir á meðan verð er lágt. Slíkt er
mun erfiðara fyrir minni útflytjendur.
Helstu keppinautar okkar eru Norð-
menn, Færeyingar, Danir og Bretar og
svo Frakkar sjálfir. Vissulega verðum
við einnig varir við samkeppni frá öðrum
íslenskum útflytjendum og er hún í flest-
um tilvikum af hinu góða. Því miður
fréttist þó stundum af undirboðum frá
minni útflytjendum á íslandi og getur
það valdið óróleika meðal kaupenda.
Nefna ber einnig gámafiskinn sem sam-
keppnisvöru. Því miður er þessi fiskur
oft lélegur að gæðum og ef magnið er
mikið endar fiskurinn oft í frystingu hér í
Frakklandi. Vonumst við vissulega til að
ný stjóm á þessum útflutningi heima,
takmarki magnið og að eingöngu sé
verið að þjóna hágæða ferskfiskmarkaði
en ekki erlendum keppinautum.
Að öðru jöfnu hefur verð farið hækk-
andi og það bendir ekkert til annars en
26