Frjáls verslun - 01.05.1990, Side 34
FORSIÐUGREIN
Verksmiðja
Seafood Ltd.
landi.
fyrirtækið fyrir 3.5 milljónir sterlings-
punda. Salan hefur vaxið ár frá ári, nam 19
milljónum punda árið 1985 og rúmlega 44
milljónum punda árið 1989. A þessu ári
virðist sem mikil aukning ætli að verða í
sölu, en við komum ef til vill nánar að því
síðar.“
Ólafur skýrði fyrir okkur verkefni sölu-
skrifstofa fyrirtækisins í helstu viðskipta-
löndunum og við spurðum hann hvort eitt-
hvað nýtt væri á döfinni varðandi fisksöl-
una um þessar mundir.
AÐ SKAPA ATVINNU HEIMA
„Verkefni okkar er fyrst og fremst að
selja fisk og þess vegna erum við stöðugt
að leita eftir nýjum viðskiptavinum og þróa
nýjar pakkningar í samvinnu við framleið-
endur heima og viðskiptaaðilana hér úti.
Uppistaðan í okkar vamingi hefur til þessa
verið fryst flök og blokk en nú bendir ým-
islegt til að möguleikar séu að skapast á
öðrum sviðum einnig. Árið 1988 hófum við
sölu á fiski í neytendapakkningum og við-
brögð markaðarins hafa verið ákaflega
góð. Um er að ræða pakkningar að óskum
verslunarkeðjunnar Marks & Spencer og
hefur salan að magni til aukist jafnt og
þétt. Árið 1988 seldum við 60 tonn af
þessari sérvöru en þegar er búið að selja
350 tonn á þessu ári, bæði til Marks &
Spencer og Tesco.
Vissulega er hér ekki um mikið magn að
ræða. Það, er hins vegar athyglisvert, er
virðisaukinn við sölu í smápakkningum.
Verðmæti þessara 350 tonna, sem við
höfum selt í ár, er um 1.6 milljónir sterl-
ingspunda en ef við hefðum selt sama
magn í blokk eða heilum flökum hefði
verðmætið orðið um 1 milljón punda. Vit-
anlega fer hluti þessa virðisauka í fram-
leiðslukostnað, pakkningar, meiri dreif-
ingarkostnað o.s.frv. en mesti ávinning-
urinn er fólginn í atvinnutækifærunum
heima á íslandi og auknum gjaldeyristekj-
um fyrir þjóðarbúið. Það er því ljóst að við
munum leggja höfuðáherslu á að auka
þessi viðskipti á næstu árum.“
Eins og kom fram eru þessar neytenda-
pakkningar að óskum kaupendanna úti og
merktar þeirra verslunum. Ólafur kvað
óraunhæft fyrir Iceland Seafood að ætla
sér að fara að keppa við stóra dreifingar-
aðila eins og Birds Eye og Ross Youngs
sem væru með um 50% markaðarins eða
stóru verslunarkeðjumar sem réðu yfir
um 40% markaðarins.
ik saltfiskframleidenda á Islandi,
'hidi saltfiskframleiöenda er um 350.
þorskafla
um
sem
hefur vt
króna á undanförnum
'6% af vöruútflutnings-
anna.
SÖLUSAMBAND (SLENSKRA FISKFRAMLEIÐENDA
AÐALSTRÆTI 6 101 REYKJAVÍK
34