Frjáls verslun - 01.05.1990, Side 35
Gimilegir sjávarréttir úr kynningarbæklingi frá Iceland Seafood Ltd.
MARKAÐIR AÐ BREYTAST
Nú hafa íslensku fisksölufyrirtækin
verið á markaðssvæði V-Evrópu um
margra ára skeið og þar hafa þau náð að
treysta ímynd íslands sem sölulands góðs
fisks í hinu kalda N-Atlantshafi. En hvað
með önnur svæði? Má ekki búast við
breyttum umsvifum með opnun Evrópu-
markaðarins 1992 og hvað með atburðina í
A-Evrópu á síðustu vikum?
, Jú, það hefur margt verið að breytast í
þessum efnum og við erum þeirrar skoð-
unar að nýir möguleikar séu að opnast svo
til daglega. Okkar helstu markaðssvæði
hafa verið og munu vera þar sem kaupget-
an er allnokkur. Helstu viðskiptalönd ís-
lendinga í fisksölu hafa verið Bandaríkin,
V-Evrópa og SA-Asía. Þessi markaðs-
svæði munu áfram vera mjög öflug og
verkefnin hljóta að vera að treysta okkar
stöðu þar og selja nýjar og verðmeiri af-
urðir á þeim mörkuðum þar sem við höfum
góða ímynd. Því til viðbótar hafa ný svæði
verið að opnast og miklu skiptir að okkur
takist að ná þar fótfestu strax. Við teljum
mikla ónýtta möguleika í S-Evrópu og
sama er að segja um Austur-Evrópulöndin.
Það, sem er hins vegar athyglisverðast
við þróunina á undanfömum árum, er sí-
minnkandi mikilvægi Bandaríkjamarkað-
arins. Hann var áður fyrr allsráðandi en á
síðastliðnu ári var svo komið að 43% af
þeim frysta fiski, sem Sambandsfrystihús-
in seldu, fór á Evrópumarkað en aðeins
26% til Bandaríkjanna.
Ástæðan fyrir þessu er m.a. sú að
gengi gjaldmiðla hefur gífurleg áhrif á sölu
afurða okkar því það, sem skiptir okkur
mestu máli, er kaupgeta viðskiptaþjóða
okkar í formi sterkra gjaldmiðla."
Ólafur lagði á það áherslu að allt mark-
aðsstarf tæki afskaplega langan tíma og
menn þyrftu ekki að búast við árangri af
sölustarfi fyrr en miklu síðar. Hann sagð-
ist t.d. um þessar mundir vera að sjá ár-
angur af starfi sem unnið var á mörkuðun-
um árið 1987 og 1988. Þannig væri allt
markaðsstarf.
„Okkur hefur hins vegar gengið ótrú-
lega vel hér í Evrópu á liðnum árum. Okk-
ar hlutfall í útflutningi Sambandsfrystihús-
anna var 13.6% árið 1982, 29.7% árið 1986
og undfanfarin ár hefur hlutfall okkar verið
BACALAO ISLANDIA LINE
Spánn - Portúgal
Sérhönnuð fjórdekkja
saltfisk flutningaskip:
Ms. Hvítanes
Ms. ísnes
Stórflutningaskip
Ms. Akranes
Ms. Black Sea
Ms. Hvalnes
Ms. Saltnes
Ms. Sandnes
Ms. Selnes
Ms. Urriðafoss
Nesskip hf. Skipaútgerð
Sími 625055, Fax 612052
35