Frjáls verslun - 01.05.1990, Blaðsíða 36
FORSÍÐUGREIN
um 43%, eins og ég sagði áðan. Og sóknin
heldur áfram,“ sagði Ólafur einnig.
MIKILSALAÍÁR
Eins og fram hefur komið í fréttum hafa
íslensku fisksölufyrirtækin f Evrópu átt
góðu gengi að fagna á undanfömum mán-
uðum. Eftirspum eftir fiski hefur verið
mikil og verðin því hækkað gífurlega.
Meginástæða þessarar þróunar er minna
framboð af fiski frá helstu keppinautum
okkar og veldur því m.a. gæftaleysi og
versnandi ástand fiskstofna.
A fyrstu þremur mánuðum þessa árs
hefur sala Iceland Seafood Ltd. verið sem
hér segir á helstu markaðssvæðunum:
Salan í Bretlandi nam rúmlega 8 milljónum
sterlingspunda og er þar um 23.9% aukn-
ingu að ræða frá sama tfma í fyrra. í
Frakklandi varð söluaukningin 58% og
nam salan 28.5 milljónum franka. Loks er
það Þýskaland, en þar seldi fyrirtækið
fyrir 6.6 milljónir marka eða 41% meira en
fyrstu 3 mánuði ársins 1989.
Heildarsala Iceland Seafood í Evrópu
fyrstu 3 mánuði ársins nam 13.5 milljónum
punda og er þar um 44.9% aukningu að
ræða. í magni talið var salan ríflega 7.200
tonn og var þar um 11.8% aukningu að
ræða. Verðmætaaukningin á fyrstu 3
mánuðum þessa árs er um 33% og ekkert
lát virðist á því marsmánuður þessa árs
varð stærsti sölumánuður í sögu fyrirtæk-
isins!
„Þessar tölur hljóta vissulega að vera
gleðiefni fyrir þjóð sem á allt sitt undir
sjávarfangi. Og þó ég vilji vara við of mikilli
bjartsýni er hins vegar full ástæða til að k'ta
björtum augum til framtíðarinnar því mörg
teikn eru á lofti um trausta stöðu íslensku
fyrirtækjanna á þessum markaði. Hér er
ekki aðeins um snögga verðhækkun og
aukna eftirspum að ræða því síðustu 12
mánuðina hefur verð á þorskflökum á
Ég tel engan vafa leika á að við
íslendingar eigum feiknalega
möguleika á sölu fiskafurða í Evrópu
Bretlandsmarkaði hækkað um 33-38% en
á ýsuflökum um 40%. Þetta em miklar
hækkanir í landi þar sem verðbólga er á
bilinu 8-9%.“
Ólafur kvað vanda fylgja vegsemd
hverri. „Miklu skiptir að okkur takist að
stýra framleiðslunni heima í þá farvegi
sem kaupendur helst vilja og einnig verð-
um við að gæta þess að framboðið felli
ekki verðið fyrir okkur. Hér úti er verðið
eina stýringin og við verðum að hafa í huga
að við emm ekki einir á þessum markaði.
Hins vegar verðum við að treysta á trygg-
an og góðan kaupendahóp, gott hráefni og
þekkt merki.
Vonandi heldur verðið sem lengst og
það er trú mín að ef verðið heldur yfir
sumarmánuðina muni það styrkjast í
haust.“
UPPSPRETTA FRAMTÍÐARINNAR
Ólafurjónsson, framkvæmdastjóri Ice-
land Seafood Ltd. í Hull, hefur starfað að
sölumálum í yfir 20 ár. Hann hefur því séð
ýmislegt og fylgst með þróun í þá vem að
Island hefur stöðugt verið að færast nær
V-Evrópu og öðram markaðssvæðum
vegna byltingar í samgöngutækni og
fjarskiptum.
„Ég tel engan vafa leika á að við fslend-
ingar eigum feiknalega möguleika hvað
varðar sölu á fiskafurðum í Evrópu. Allir
fiskkaupendur á þessum svæðum, sem
telja tugi milljóna manna hvert um sig,
beina sjónum sínum að fslandi sem hráefn-
isuppsprettu framtíðarinnar. Mengunhef-
ur valdið miklum usla á hafsvæðunum
næst Evrópu, Norðmenn hafa gengið
mjög nærri fiskstofnum sínum og sama er
að segja um Kanadamenn. Við höfum
verið á þessum markaði mjög lengi og það
er engin spuming að íslenskur fiskur hefur
á sér gott orð.
Við þurfum að auka sóknina inn á þessa
eftirsóttu markaði, stýra framleiðslunni
heima í ákveðinn farveg að óskum kaup-
enda hér úti og auka allt markaðsstarf með
það fyrir augum að hækka verðið á hverja
útflutta einingu. Ef okkur tekst þetta þarf
íslensk þjóð engu að kvíða," sagði Ólafur
Jónsson í Hull að síðustu.
HEITAVATNS- OG
GUFUHREINSARI
Ný, vestur-þýsk ræstingar-
tækni frá KÁRCHER
VEITIR:
• SPARNAÐ: á orku, vatni,
tíma og viðhaldskostnaði
• ÖRYGGI: með þreföldu
öryggiskerfi á hitastilli
• FJÖLHÆFNI: með margvís
legum auka- og fylgibúnaði
SKEIFUNNI3E, SÍMAR 82415 & 82117