Frjáls verslun - 01.05.1990, Page 39
ISLENDINGAR VERÐA AÐ
STANDA SAMAN UM
SALTFISKMARKAÐINN
- SEGIR JOSE SOLERNOU, FULLTRÚISÍF í BARCELONA
Jose Solernou, fulltrúi SÍF í Barcelona.
„íslendingar hafa verið leið-
andi á saltfiskmarkaðinum á
Spáni síðustu tíu árin. Markaðs-
staðan er mjög sterk nú sem
stendur en þessi markaður er af-
ar viðkvæmur. Margra ára upp-
bygging getur hrunið til grunna
með rangri stefnumótun. I Kata-
lóníu, sem er mikið saltfisk-
neyslusvæði, hefur íslenski
saltfiskurinn um 80% markaðs-
hlutdeild og það eru margir sem
öfundast yfir því. Við höfum
40% af öllum Spánarmarkaðin-
um og tæp 70% af heildarinn-
flutningi saltfisks til Spánar.
Það er vandasamt að verja svo
stórt vígi,“ sagði Jose Solernou,
fulltrúi SIF í Barcelona, þegar
ritstjóri Frjálsrar verslunar
hitti hann þar að máli fyrir
skömmu. Og hann hélt áfram:
„Forystuna hér geta íslendingar
þakkað Færeyingum sem klúðruðu
sterkri stöðu sinni hér þegar þeir
hættu að standa saman og hófu inn-
byrðis keppni á saltfiskmörkuðum
Spánar. Þeir fóru að selja hver í sínu
lagi, klóruðu augun hver úr öðrum á
skömmum tíma og skenktu íslending-
um forystuna því þeir höfðu vit á að
standa saman. íslendingar voru vel að
forystunni komnir vegna gæða fisks-
ins sem þeir senda hingað. En það,
sem mestu réði, var samstaðan sem
hefur gert íslendingum kleift að veita
hér góða þjónustu, standa við tíma-
setningar og tryggja eðlilegt að-
streymi vörunnar, að því marki sem
það er unnt vegna fiskvöntunar. Til
að geta stundað vöruþróun, markaðs-
rannsóknir, kynningu og alhliða
markaðsstarfsemi þarf að vera stór.
Það þarf að hafa styrk. Með því að
standa saman um SÍF hafa íslending-
ar uppfyllt allt þetta og náð af þeim
sökum góðum og vaxandi árangri á
Spánarmarkaði.
Þess vegna er mér með öllu óskilj-
anlegt að mönnum skuli koma til hug-
ar að splundra samtökunum með af-
námi einkaleyfis á saltfisksölu sem
leiða mundi til eyðileggingar á því
mikla starfi, sem hér hefur verið unn-
ið, starfi sem skilað hefur íslending-
um forystu á þessum markaði. Ég hef
spurt um rökin fyrir þessari hugmynd
en enginn getur gefið mér svar.“
NORDMENN FETA í FÓTSPOR OKKAR
„Á sama tíma og stjómvöld á ís-
landi hugleiða að afnema einkaleyfi
SÍF, sem leiða mundi til þess að ís-
lendingar mundu sækja hér fram
sundraðir, eru Norðmenn að vinna að
því að sameina krafta sína á saltfisk-
markaðinum með því að koma sér upp
sölusamtökum í líkingu við SÍF. Þeir
eru að reyna að taka upp fyrirkomulag
íslendinga í þessu vegna þess að þeir
hafa gert sér ljóst að yfirburðir ís-
lendinga byggjast á því að standa
saman og vera með því stórir og öfl-
ugir.
Norðmenn eru með sendiráð í
39