Frjáls verslun - 01.05.1990, Page 44
FORSIÐUGREIN
ISLENSKAN FISK MA EKKI
VANTA Á MARKAÐINN
- SEGIR FRANCISCO ROVIRA, SALTFISKINNFLYTJANDI í BARCELONA
kunnugir og geta aðlagað vör-
una kröfum neytenda á hverjum
stað og tíma.
Francisco Rovira, eigandi fyrir-
tækisins hefur orðið:
„Markaðsstaða íslenska saltfisks-
ins hefur orðið sterkari og sterkari á
undanförnum árum vegna gæða,
jafnrar afgreiðslu til okkar og mark-
vissrar kynningarstarfsemi. I mínum
huga er enginn vafi á því að íslenski
saltfiskurinn er númer eitt. Áríðandi
er fyrir okkur innflytjenduma að fisk-
inn vanti ekki og samstarfið við ísland
verði áfram öruggt og traust. Ef v'ð
fáum ekki fisk verðum við annað
hvort að loka eða snúa okkur annað
og kaupa lakari fisk frá öðrum en ís-
lendingum. Við viljum komast hjá því í
lengstu lög og við vonum að fyrir-
komulag í sölu á saltfiski frá íslandi til
Spánar verði óbreytt. Það er öllum
fyrir bestu, íslendingum, okkur og
neytendunum. Allar truflanir og
óregla í framboði bijóta niður það
mikla starf sem hér hefur verið unn-
ið.“
„Ég kom fyrst til íslands fyrir
tveimur árum og hreyfst mjög af land-
inu. Innflytjendur hér hafa heimsótt
ísland, skoðað vinnslustöðvarnar og
hitt fólkið sem vinnur að saltfiskfram-
leiðslunni. Auk þess höfum við fengið
hópa íslenskra fiskframleiðenda og
starfsmanna í heimsókn til okkar.
Gagnkvæmar heimsóknir af þessu
tagi eru mikils virði og auka skilning
allra aðila á því sem verið er að fást
við. Ég er formaður í félagi saltfisk-
innflytjenda í Katalóníu og við erum
mjög ánægðir með samstarfið við
SÍF. Þeir hafa góðan skilning á þörf-
Francisco Rovira og Jose Solernou fulltrúi SÍF í Barcelona.
Rovira Vallhonrat, S.A. er eitt
þeirra fyrirtækja sem flytja inn
íslenskan saltfisk til Barcelona.
Yfir 95% af innflutningi fyrir-
tækisins er frá Islandi. Fyrir-
tækið dreifir saltfiskinum til
smásala, veitingahúsa og ann-
arra. Að hluta til er fiskurinn
unninn frekar hjá fyrirtækinu
og honum m.a. pakkað í neyt-
endapakkningar til sölu í kjör-
búðum. Veitingahúsin óska eftir
að fá fiskinn afgreiddan til sín
með mismunandi hætti og þessa
þjónustu veitir hinn spánski
innflytjandi. Hann segir að erfitt
sé að láta þennan hluta loka-
vinnslunnar fara fram á íslandi.
Kröfur neytenda séu mjög mis-
í vinnslusal hjá Francisco Rovira.
munandi eftir löndum og lands-
hlutum og því sé nauðsynlegt að
þessi lokafrágangur sé unninn á
staðnum þar sem menn eru vel
44