Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1990, Qupperneq 48

Frjáls verslun - 01.05.1990, Qupperneq 48
FOLK ÍSLENDINGAR EKKI ÞJÓNUSTULUNDAÐIR HILDUR JÓNSDÓTTIR, DEILDARSTJÓRIINNANLANDSDEILDAR SAMVINNUFERDAR-LANDSÝNAR, TEKIN TALI Á síðustu tíu árum hafa ís- lendingar orðið vitni að geysi- legri þróun á sviði ferðamála hér á landi og kveða sumir svo fast að orði að frekar beri að tala um byltingu en þróun. Þeir eru margir sem hafa lagt hönd á plóginn og ómælda vinnu í að gera Island að því ferðamanna- landi sem það er orðið. Ein þeirra er Hildur Jónsdóttir, deildarstjóri innanlandsdeildar Samvinnuferða-Landsýnar, en hún hefur starfað af miklum eld- móði á þessu sviði sem og öðr- um. Hildur hefur sjaldan farið eftir hefð- bundnum leiðum í lífinu. Hún var búin að reyna margt áður en hún ákvað að leggja ferðamálunum lið. ,Jú, það er rétt. Ég kom frekar með reynsluna í farteskinu þegar ég byrjaði hjá Samvinnuferðum- Landsýn en langskólanám." Hildur er ein þeirra persóna sem gustar af og það fer vart á milli mála þegar hún er einhvers staðar nærri. Mér fróðari menn segja að allt hennar starf einkennist af þessum dugnaði og framtakssemi. En hver er þessi kona? HflSETI Á HUMARVERTÍÐ „Ég hef búið alla mína ævi hér á suð- vesturhomi landsins, annars vegar í Reykjavík og á Seltjamamesi og hins veg- ar í Vestmannaeyjum. Faðir minn var skipstjóri og útgerðarmaður svo ég er alin upp við sjó og sjávarútveg. Á ámnum 1958-1964 bjó ég í Vestmannaeyjum og naut þeirra forréttinda að komast að sem háseti á bát hjá föður mínum síðustu tvö sumrin mín í Eyjum. Við vorum á humar- veiðum. Fyrra sumarið var ég fimmtán ára TEXTI: HALLDÓRA SIGURDÓRSDÓHIR MYNDI 48 Hildur Jónsdóttir deildarstjóri hjá Samvinnuferðum — Landsýn. og var hálfur háseti á hálfum hlut en sum- arið eftir var ég á fullum hlut og var mjög stolt af því. Hvað skólagöngu mína varðar lauk ég gagnfræðaprófi sautján ára frá Réttar- holtsskóla. Ég hafði geysilegan áhuga á tungumálum og í mér var þegar komin þessi ævintýra- og útþrá sem einkennir mig og allt mitt líf. Foreldrar mfnir vildu að ég færi í frekara nám og lyki a.m.k. stúd- entsprófi en ég var ekki á sama máli. í staðinn fyrir að setjast á skólabekk réði ég mig í vist til þýskra læknishjóna, sem bjuggu í litlum baðstrandarbæ rétt hjá Lúbeck. Næstu tveimur árum eyddi ég í tungumálanám því eftir tæplega árs dvöl í Þýskalandi fór ég til Englands og lærði ensku í Cambridge. Mér leið aldrei eins vel í Englandi og í Þýskalandi og skýringarinnar er væntan- lega að leita í því að ég bjó hjá fjölskyldu í !: KRISTJÁN EINARSSON Þýskalandi en var í fullu starfi og síðan í kvöldskóla í Englandi. Ég átti mína þýsku vini en aftur á móti var ég mest með ís- lendingum í Cambridge. Ég vil líka kenna því dálftið um að ég var hvergi nálægt sjó eða vatni í Englandi. Það virðist vera þannig að mér liði ekki vel nema hafa sjáv- arföllin í námunda við mig. Ég bjó t.d. í nokkur ár í Alfheimunum í Reykjavík inni í miðjum bæ og það var ekki fyrr en við fluttum út á Seltjamames, þar sem ég hef sjóinn fyrir augunum allan daginn, að ég fann mig aftur heima. Þegar ég kom heim tæplega tvítug tók ástin í taumana og síðan þá hefur Sigmund- ur Ríkarðsson verið minn lífsfömnautur. Næstu fimm árin vann ég ýmis störf og var m.a. flugfreyja hjá Loftleiðum í þrjú ár. Það kom svo að því að ég eignaðist dreng- ina mína tvo, þá Ríkarð og Jón Teit sem nú em 18 og 15 ára. Þegar ég eignaðist Ríkharð, þá 25 ára gömul, fór ég að velta lífinu meira fyrir mér og mig langaði að byggja mig upp og gera eitthvað spennandi. Það varð því úr að ég settist á skólabekk í Öldungadeild MH. Næstu fjögur árin fóra íbamauppeldi og skólanám en ég lauk stúdentsprófi eftir fjögurra ára skólagöngu." Það hlýtur að hafa kostað blóð, svita og tár að vera með tvö h'til böm á sama tíma og þú varst að lesa undir stúdentspróf. ,Já, auðvitað var þetta erfitt en þetta gekk. Svefntíminn var mun styttri en ég hafði áður vanist og maður vann aðeins meira en áður. Ég er mjög metnaðarfull að eðlisfari og það hjálpaði heilmikið enda kom aldrei til greina að gefast upp. Því má náttúmlega ekki gleyma að þama var ég sjálf tilbúin að fara í skóla, þetta var mín ákvörðun og minn vilji enda fékk ég mjög mikið út úr náminu og mér fannst gaman í MH. Það kom aldrei upp sú staða að ég sæi eftir því að hafa ekki farið í mennta-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.