Frjáls verslun - 01.05.1990, Page 62
TOLVUR
Frosti Bergsson, framkvæmdastjóri HP á íslandi og Jörgen Herlevsen, forstjóri ræða hér málin á góðri stundu á
afmælishátíðinni.
félagið í heild sinni ef þeir opnuðu hurðina
aðeins meira fyrir okkur á þennan hátt.“
ÍSLAND OG DANMÖRK MEÐ
TÖLVUVÆDDUSTU LÖNDUM HEIMS
Hver er munurinn á íslandi og Dan-
mörku sem viðskiptalöndum HP?
„Lítið fyrirtæki eins og HP á íslandi
getur ekki gert allt og fengið allt sem það
vill. Það er þess vegna mjög háð stuðningi
frá Danmörku, frá Bandaríkjunum og frá
markaðsmiðstöðvum okkar í Evrópu.
Stærðin á markaðinum ein og sér tak-
markar það sem fyrirtækið getur boðið
upp á. Það er mjög dýrt að láta þýða hug-
búnað yfir á íslensku. íslendingum er mjög
annt um íslenskuna og Danir vilja einnig
vemda sitt tungumál, þó að málvemdar-
stefnan sé mun róttækari héma en í Dan-
mörku. En þetta kostar mjög mikið því
það kostar jafn mikið að láta þýða hugbún-
að yfir á dönsku eins og íslensku. Þessi
lönd em mjög svipað langt komin hvað
varðar tölvuvæðingu. ísland er eitt tölvu-
væddasta ríki heims og það er Danmörk
einnig. Það er mjög áhugavert að reyna
nýja hluti í þessum ríkjum vegna þess að
þau em svo lítil. Ef maður ber ísland og
Danmörku saman hvað varðar tölvun þá
hugsa ég að íslendingar fái meira út úr
tölvunum sínum en Danir og reyndar
meira en flestar aðrar þjóðir sem ég
þekki.“
Sérðu fyrir þér einhverjar stórkostleg-
ar breytingar í tölvuiðnaðinum í náinni
framtíð?
„Tölvumar munu fara inn á heimilin í
auknum mæli. Þær em einnig notaðar
mikið núna í framleiðslu og þjónustustörf-
um. Tölvan er í rauninni orðin hluti af
framleiðsluvörunni eða þjónustunni. Raf-
eindasamskipti verða lykilatriði á næstu
ámm og í gegnum þau samskipti mun
myndast það sem við köllum viðskiptavin-
ur — þjónn, umhverfi. Það verður tölvun-
arumhverfi framtíðarinnar. Þjónustu-
stöðvar, sem þjóna öðmm tölvukerfum
eða hópum af einkatölvum. Viðskiptavin-
imir verða einkatölvur, stórar fyrirtækis-
tölvur eða vinnustöðvar. En það mikil-
vægasta í sambandi við þetta kerfi er að
það verður hægt að tengja allt við það. Og
það verður mjög auðvelt að nota tölvum-
ar. Þær munu breytast þannig að allir geti
notað þær, eins og sfma til dæmis. Það
nennir enginn að fara á námskeið til að
læra að nota símann. En slíkt tölvunamm-
hverfi verður aðeins byggt upp með sam-
vinnu. Tölvuframleiðendur verða að læra
að búa til tölvur sem geta talað við aðrar
tölvur. Lokuð kerfi verða þá úr sögunni.
Það verða viðskiptavinimir, sem stjóma
framleiðslu tölvufyrirtækjanna, en ekki
tölvufyrirtækin sem stjóma viðskiptavin-
unum. Fyrirtæki, er átta sig ekki á þessu,
verða á eftir í samkeppninni. í framtíðinni
verður það nefnilega ekki þannig að þeir
stóm éti þá litlu. Það verða þeir fljótu sem
éta þá hægu.“
62