Frjáls verslun - 01.03.1991, Blaðsíða 5
RITSTJORNARGREIN
UPPSTOKKUN SIOÐA-
KERFISINS ER SNÚIÐ MÁL
Að undanförnu hafa málefni fjárfestingarlánasjóða
atvinnuveganna verið talsvert til umræðu. í áliti
nefndar, sem starfað hefur á vegum Forsætisráðuneyt-
isins, hefur komið fram sú stefna að sameina skuli
hina ýmsu sjóði atvinnulífsins. En Viðskiptaráðuneyt-
ið hefur látið semja lagafrumvarp sem gerir ráð fyrir að
fjárfestingalánasjóðunum verði breytt í hlutafélög og
að þeim verði settar almennar starfsreglur.
Sameining sjóða er eitt af þessum lausnarorðum
sem skotið hafa upp kollinum í stjórnmálaumræðu á
Islandi án þess menn geri sér grein fyrir þeim raun-
veruleika sem að baki býr.
Aður en rætt er um að sameina sjóði verða menn að
átta sig á eðli þeirra, stöðu og starfsháttum. Fjárfest-
ingarlánasjóðirnir eru nánast eins misjafnir og þeir
eru margir. Þeim má í aðalatriðum skipta í þrennt.
Húsnæðislánakerfið er langstærsti hluti sjóðanna
með yfir 80 milljarða útlán. Með breytingu yfir í hús-
bréfakerfi er þegar búið að marka framtíðarstefnu sem
ætti að auðvelda stjórnvöldum að koma framkvæmd
vegna þessa kerfis yfir á bankana. Byggingarsjóður
ríkisins er hins vegar einn af þessum opinberu sjóðum
sem fyrirsjáanlega verða gjaldþrota og eru á ábyrgð
ríkisins.
Næst er að nefna fjárfestingarlánasjóði atvinnuveg-
anna sem sumri hverjir eru öflugir og starfa á við-
skiptalegum grunni. Þar er einkum átt við Fiskveiða-
sjóð, Iðnlánasjóð og Iðnþróunarsjóð. Þeir eru allir
stórir og öflugir og hafa góða eiginfjárstöðu. Ekki verð-
ur séð að neitt vit sé í að hrófla við t.d. þessum þremur
sjóðum. Hins vegar er sú þróun hafin að þeir hafa tekið
smærri sjóði yfir og má ætla að framhald geti orðið þar
á og að það geti orðið til góðs. Þannig samruni verður
að gerast í frjálsum samningum en ekki með valdboði
að ofan.
Loks er að nefna opinbera stuðnings- og styrktar-
sjóði, eins og t.d. Byggðasjóð, Hlutafjársjóð, Atvinnu-
leysistryggingasjóð og Framkvæmdasjóð íslands. Þeir
hafa allir þurft að lána til starfsemi sem stendur ekki
undir skuldbindingum sínum og hafa því tapað bróður-
parti eiginfjár síns eða munu tapa því. Stuðningur
þessara sjóða hefur verið veittur samkvæmt fyrirmæl-
um stjórnvalda, að því er virðist, í þeim tilgangi að
fresta því að vandi komi upp á yfirborðið og falli á
ríkissjóð.
Þessir sjóðir eru allir á ábyrgð ríkissjóðs og eru
vandamál sem stjórnvöld verða að leysa. Það er út í
hött að ætla sér að leysa vanda þessara sjóða með því
að sameina þá sjóðum sem standa vel að vígi og gegna
hlutverkum sínum með sóma. Þannig væri verið að
eyðileggja trausta sjóði með því að láta þá axla syndir
annarra. Koma verður í veg fyrir skemmdarverk af því
tagi.
ISSN 1017-3544
Stofnuð 1939
Sérrit um viðskipta-, efnahags- og atvinnumál
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Helgi Magnússon — RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Valþór Hlöðversson —
AUGLÝSINGASTJÓRAR: Sjöfn Sigurgeirsdóttir og Kristrín Eggertsdóttir — LJÓSMYNDARAR: Grímur Bjamason, Gunnar
Gunnarsson, og Kristján Einarsson — ÚTGEFANDI: Fróði hf. — Tímaritið er gefið út í samvinnu við samtök í verslun og viðskiptum —
SKRIFSTOFA OG AFGREIÐSLA: Ármúli 18, sími 82300, Auglýsingasími 685380 - RITSTJÓRN: Bfldshöfði 18. sími 685380 -
STJÓRNARFORMAÐUR: Magnús Hreggviðsson — AÐALRITSTJÓRI: Steinar J. Lúðvíksson — FRAMKVÆMDASTJÓRI: Halldóra
Viktorsdóttir - ÁSKRIFTARVERÐ: 2.490 kr. (415 kr. á eintak) - LAUSASÖLUVERÐ: 499 kr. - SETNING, TÖLVUUMBROT,
PRENTUN OG BÓKBAND: G. Ben. prentstofa hf. — LITGREININGAR: Prentmyndastofan hf.
Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir
5