Frjáls verslun - 01.03.1991, Blaðsíða 53
varðandi vinnufatnað í öllum starfs-
greinum. Gerðar eru sífellt meiri
kröfur um að fatnaðurinn falli vel að
ímynd fyrirtækisins. Anna tekur sem
dæmi að bankastarfsmenn, verð-
bréfasalar, lögmenn og trygginga-
sölumenn klæði sig yfirleitt á íhalds-
samari hátt en t.d. skapandi hönnuðir
auglýsingafyrirtækja. „Þar sem fyrri
hópurinn meðhöndlar fjármál og lög-
fræðileg mál fólks þurfa þeir að líta
traustvekjandi út því traust og trú-
verðugheit skipta þar mestu máli.
Fjármálaráðgjafiíbanka, semklæðist
gallabuxum og bleikum stuttermabol í
vinnunni, er ekki líklegur til að vekja
traust viðskiptavina. Slíkur fatnaður á
jafn illa við á skrifstofunni og teinótt
jakkaföt eiga við á baðströndinni."
— Hvemig á viðskiptaklæðnaður
að vera?
„Svarið er mjög einfalt, hann á að
vera sígildur. Snið, stíll, litir og fylgi-
hlutir eiga að vera þannig að hægt sé
að ganga í fatnaðinum þrátt fyrir
tískusveiflur. Dragt úr góðu efni með
beinu sniði og sígildri blússu er við-
eigandi jafnvel ár eftir ár. Litir á fatn-
aðinum eru mjög mikilvægt atriði.
Hægt er að skapa mismunandi áhrif
með litum. Dökkir litir hafa traust-
vekjandi áhrif en þó ber að varast að
þannig föt geri mann drungalegan.
Fylgihlutimir, þ.e. bindi, skyrta,
slæða, skór o.s.frv., geta breytt
áhrifum t.d. dökkra jakkafata eða
dragta. Sumir litir hafa þau áhrif að sá,
sem klæðist þeim, virðist fölur og
veiklulegur. Það er auðvelt að forðast
þannig slys ef vandlega er valið.“
GOH ÚTLIT SKIPTIR KARLMENN MÁLI
— Er einhver sérstakur hópur
fólks frekar en annar sem óskar eftir
ráðleggingum um fataval?
„Nei, ég verð ekki vör við það. Það
er auðvitað munur á konum og körl-
um íþessu sambandi. Það þykir öllum
eðlilegt að konur hugsi töluvert um
fatnað og útlit en karlmenn ekki.
Staðreyndin er sú að það skiptir karl-
mennina alveg jafn miklu máli að líta
vel út en þeir leyfa sér því miður ekki
alltaf að sýna hversu áhugasamir þeir
eru um þessi mál. Það hefur þó
breyst töluvert undanfarin ár.
Eftir því sem lögð er meiri áhersla
á ímynd fyrirtækja því mikilvægara er
Klæðnaður herramannsins á efri myndinni er svolítið ýktur. Anna segist þó oft sjá
mistökin sem koma þarna fram. Fullkomið ósamræmi er á milli jakka, skyrtu, buxna,
bindis og klúts. Röndótt skyrta ætti aldrei að vera undir köflóttum jakka. Buxurnar eru
of grófar og of síðar. Jakkinn er of þröngur og bindið of munstrað. Bindi ætti aldrei að
vera svo stutt að það bendi á magann. Allra síst ef maginn er farinn að fylla út í
skyrtuna.
Á neðri myndinni er hann kominn með klassískt yfirbragð. Litir viðskiptanna eru
gráir og navy-bláir. Hann er öruggur, traustvekjandi og veit hvað hann er að gera.
Klæðnaður herramannsins er frá Herrahúsinu Adam á Laugavegi.
Gleraugun eru frá Linsunni í Aðalstræti.
53