Frjáls verslun - 01.03.1991, Blaðsíða 6
5 RITSTJORNARGREIN
8 FRÉTTIR
18 GÆÐI - GÆÐASTJÓRNUN
í þessari grein er gæðastjórnun í
fyrirtækjum gerð að umtalsefni. Margir
eru þeirrar skoðunar að betra skipulag
íslenskra fyrirtækja sé forsenda þess að
lífskjör haldist hér óbreytt næstu ár og
áratugi. Minnkandi afli úr sjó geri það
m.a. að verkum að betri nýting hráefna
og aukin ffamleiðni í sjávarútvegi verði
að koma til. Þá þykir ljóst að íslenskar
útflutningsgreinar eigi litla möguleika á
erlendum mörkuðum nema vottuð
gæðakerfi verði tekin upp hér heima.
Víða um heim hefur atvinnulífið verið
endurskipulagt með góðum árangri, en
það voru Japanir sem riðu á vaðið í
uppbyggingarstarfi eftirstríðsáranna. I
þessari grein um gæði og gæðastjómun
er rætt við forsvarsmenn nokkurra
fyrirtækja um þeirra hlut í þessari þróun,
en það em þeir Ágúst Einarsson hjá Lýsi
hf., Jóhannes Siggeirsson í íslandsbanka,
Þórður Magnússon hjá Eimskip, Halldór
Amason formaður
Gæðastjómunarfélagsins, Páll Kr.
Pálsson og Jóhannes Þorsteinsson hjá
Iðntæknistofnun.
30 HREINT LAND - BETRA
LAND
Sorpeyðing höfuðborgarsvæðisins bs.
tekur til starfa í síðustu viku
aprílmánaðar. Með þeirri starfsemi
verður brotið blað í sorpförgunarmálum
á íslandi og þótti mörgum tími til
kominn. Við kynnum ástandið eins og
það er nú í máli og myndum en að öðm
leyti er fjallað um það mikla
umhverfisátak sem nú er í undirbúningi
með stofnun Sorpu - Sorpeyðingar
höfuðborgarsvæðisins. M.a. er rættvið
Ögmund Einarsson framkvæmdastjóra
fyrirtækisins, minnst á möguleika til
endurvinnslu á sorpi og starfsemi þessa
nýja fyrirtækis lýst. Loks er fjallað um
hlut atvinnulífsins í þessu mikla átaki.
39 TÆKIÁ SKRIFSTOFUNNI
Eins og allir vita hefur mikil tæknibylting
átt sér stað á öllum sviðum þjóðlífs
síðustu áratugi. Þeirri byltingu er þó
hvergi nærri lokið því stöðugt em að
koma fram nýjungar. Við ræðum við
forsvarsmenn þeirra fyrirtækja sem
flytja inn skrifstofutæki af ýmsu tagi og
birtum upplýsingar um verð og þá
möguleika sem boðið er upp á í hvert
sinn.
48 NÝR FORSTJÓRABÍLL
Volvo verksmiðjumar sænsku kynntu
nýlega glæsilegan farkost sem hlotið
hefur nafnið Volvo 960. Má fullyrða að
sannkallaður forstjórabíll sé kominn fram
á sjónarsviðið og bætist hann í hóp fleiri
sem þar em fyrir. Leó M. Jónsson
véltæknifræðingur og ritstjóri Bílsins brá
sér til Svíþjóðar og kynnti sér gripinn.
51 ATHYGLISVERÐUSTU
AUGLÝSINGARNAR
I íslenski markaðsklúbburinn, ÍMARK,
6