Frjáls verslun - 01.03.1991, Blaðsíða 26
FORSIÐUGREIN
KREFJANDIVERKEFNI
RŒTT VIÐ ÁGÚST EINARSSON HJÁ LÝSIHF. UM GÆÐASTJÓRNUN
Það iðnfyrirtæki sem er hvað
einna lengst komið í gæða-
stjómun hér á landi er Lýsi hf.
við Grandaveg í Reykjavík. Þar
hófst skipulagt átak árið 1987
og má segja að nú sé verkefnið á
lokastigi. Hefur þegar verið sótt
um það til bresks gæðavottunar-
fyrirtækis að fá gæðakerfið í
Lýsi hf. vottað og má búast við
að það verði gert í haust. Þar
með yrði Lýsi hf. fyrsta íslenska
fyrirtækið til að fá vottað gæða-
kerfi. Við spurðum Ágúst Ein-
arsson framkvæmdastjóra Lýsis
hvers vegna þessi áhersla hafi
verið lögð á gæðastjórnun í
fyrirtækinu?
„Lýsi hf. hefur á síðustu árum
þróað framleiðslu sína æ meira á
neytendamarkaði erlendis og það hef-
ur leitt af sér auknar kröfur um að við
sýnum fram á að okkar framleiðsla
uppfylli ströngustu skilyrði. Okkar
stærstu viðskiptaaðilar eru raunar
lyfjafyrirtæki, en á þeim markaði gilda
ákveðnar og mjög strangar reglur um
að vörur uppfylli ítrustu gæðakröfur.
Smám saman hefur þessi mikla
áhersla á gæði okkar vöru þróast út í
það að við ákváðum að koma hér á
gæðakerfi samkvæmt ISO 9002
staðlinum og síðan þá hefur allt starfs-
fólk fyrirtækisins farið í gegnum mjög
harðan en ánægjulegan skóla og allur
rekstur verið yfirfarinn. Árangurinn
er þegar kominn í ljós og ekki er neinn
vafi á því að þetta verður okkur til enn
meiri heilla þegar fram í sækir“, sagði
Ágúst Einarsson framkvæmdastjóri.
Ágúst sagði að þorri starfsmanna
hefði tekið þátt í verkefninu og að nú
væri verið að fullvinna eigin gæða-
handbók fyrirtækisins. En hvernig er
staðið að verki. Ágúst svarar því.
„Við byrjuðum á því að stofna yfir-
stjórn verkefnisins en í henni eiga
sæti auk mín, tæknilegur fram-
kvæmdastjóri og verksmiðjustjóri.
Við höfum svo unnið náið með Gunn-
ari H. Guðmundssyni hjá Ráðgarði,
en hann er manna fróðastur um
gæðastjómun fyrirtækja. Síðan voru
myndaðir hópar um ritun allra kafla
gæðahandbókarinnar. Hver hópur
ræddi sitt svið fram og til baka og
skrifaði uppkast að sínum kafla. Sá
kafli fór svo til yfirlestrar hjá þeim
aðilum innan fyrirtækisins sem málið
varða og athugasemdir gerðar. Þær
eru svo metnar og smám saman hefur
gæðahandbókin orðið til.
Það má eiginlega segja að með
þessu séum við að setja okkar starf-
semi á blað, við skilgreinum ábyrgð
einstakra starfsmanna en umfram allt
reynum við að bæta aðferðirnar og
auka þar með hagkvæmni í öllum
rekstriunum. Takist vel til teljum við
ljóst að við náum að framleiða betri
vöru með minni tilkostnaði.“
Ágúst sagði að mjög gaman hefði
verið að vinna að þessu gæðastjórn-
unarátaki hjá Lýsi hf. Þessi vinnu-
brögð gerðu auknar kröfur til stjórn-
enda og starfsfólks en ekki síður
birgjanna, þ.e. þeirra fyrirtækja sem
viðkomandi aðili kaupir aðföng af eða
þjónustu. „Þannig verður smám sam-
an til keðjuverkun í þessum efnum því
margfeldisáhrifin eru fljót að segja til
sín. Mér þykir því einsýnt að ef þeim
fyrirtækjum fjölgar sem taka upp
TEXTI: VALÞÓR HLOÐVERSSON MYND: KRISTJÁN EINARSSON
26