Frjáls verslun - 01.03.1991, Blaðsíða 57
Bragi Hannesson, forstjóri Iðnlánasjóðs, er 58 ára lögfræðingur. Hann var framkvæmdastjóri Landssambands
iðnaðarmanna á árunum 1958-1963 og jafnframt framkvæmdastjóri Meistarasambands byggingarmanna árin
1961-1963. Hann varð bankastjóri Iðnaðarbanka íslands árið 1963 og gegndi því starfi þar til bankinn hvarf inn í
íslandsbanka í ársbyrjun 1990. Síðustu 5 árin þar á undan hafði Bragi umsjón með rekstri Iðnlánasjóðs, fyrir hönd
bankastjórnar Iðnaðarbankans, en tók við forstjórastarfi Iðnlánasjóðs í ársbyrjun 1990.
skipta, eru ekki nema þrír. Þ.e. Fisk-
veiðasjóður, Iðnlánasjóður og Iðn-
þróunarsjóður. Það er okkar skoðun
að best sé að þeir fái að halda því
áfram í friði.“
í ræðu sinni sagði Víglundur að iðn-
rekendur væru hins vegar tilbúnir til
samstarfs um að breyta fjárfestingar-
lánasjóðum atvinnuveganna í hlutafé-
lög og að þeim yrðu settar almennar
starfsreglur, þó þannig að eignarrétt-
ur iðnfyrirtækja, sem greitt hafa
skyldusparnað iðnfyrirtækja og iðn-
aðarmanna í formi iðnlánasjóðsgjalds
til Iðnlánasjóðs, verði viðurkenndur,
en meira en 70% af núverandi eigin fé
Iðnlánasjóðs er tilkomið vegna iðn-
lánajóðsgjaldsins og innan við 30%
vegna framlaga frá ríkissjóði.
Það vekur athygli hversu ómark-
viss umræðan um hugsanlega upp-
stokkun sjóðakerfisins hefur verið.
Þannig gagnrýndi Viðskiptaþing
Verslunarráðsins, sem haldið var í
febrúar sl., fjárfestingarlánasjóðina
harðlega og mjög almennt og alveg án
þess að gera greinarmun á styrktar-
og gjafasjóðum ríkisins og hinum
raunverulegu fjárfestingarlánasjóð-
um atvinnuveganna.
Bragi Hannesson er forstjóri Iðn-
„Fjárfestingarlánasjóðirnir
eru eins ólíkir og þeir eru
margir. Þetta tekur til
stærðar þeirra og
styrkleika, skipulags og
starfshátta.“
lánasjóðs. Frjálsri verslun lék forvitni
á að heyra afstöðu hans til þeirrar
gagnrýni sem t.d. kom fram á Við-
skiptaþinginu. Auk þess veitti hann
okkur ýmsar almennar upplýsingar
um sjóðinn.
Á Viðskiptaþingi Verslunarráðs-
ins, sem haldið var í febrúar, kom
fram hörð gagnrýni á starfsemi fjár-
festingarlánasjóða. Gagnrýnin kom
fram í nefnd sem fjallaði um fjár-
magnsmarkaðinn, en í nefndinni áttu
sæti ýmsir forráðamenn banka, fjár-
festingarfyrirtækja og annarra fyrir-
tækja hér á landi.
I samantekt þeirra segir m.a.:
„Opinberir fjárfestingarlánasjóðir
hafa iðulega veitt lán í miður skyn-
samlegar fjárfestingar. Þannig hafa
þeir stuðlað að ógnvænlegri gjald-
þrotum en ella og valdið þannig
óskyldum aðilum, oft einstaklingum,
þungum búsifjum. Þá hafa þeir grafið
undan viðskiptasiðferði með því að
lána eftir pólitískum eða persónuleg-
57