Frjáls verslun - 01.03.1991, Blaðsíða 42
SKRIFSTOFUTÆKI
SKRIFBÆR HF.
Jóhann T. Steinsson, sölustjóri Skrifstofuvéla Sunds hf., segir Xerox tækin
hafa verið valin til að þjóna öllum fjarskiptum á Ólympíuleikunum í Barcel-
ona á næsta ári.
standa aðgerðarlausa úti í homi og
bíða eftir að myndritinn ljúki sér af
svo næsti komist að. Þetta tæki er
einnig hægt að tengja PC tölvuneti
þannig að starfsmenn geta sent bréf
beint frá tölvunni á skrifborðinu út um
allan heim. Xerox 7033 er einnig með
innbyggt „pósthús“. Það er sérstakt
gleymsurými þar sem tækið geymir
bréf sem ekki eiga að liggja fyrir allra
augum. Hver starfsmaður hefur sitt
númer og stimplar það inn í tækið til
að ná út þeim bréfum sem send voru
til hans persónulega. Jóhann segir
prentgæðin úr þessari vél jafnast á
við laserprentara. Byltinguna í hönn-
un þessa tækis segir hann vera bæði
öflugt minni og öflugan sendingar-
hraða eða 7 sekúndur fyrir A-4 blað
miðað við bestu aðstæður.
Nýjasta ljósritunarvélin frá fyrir-
tækinu heitir Xerox 5034 og er, að
sögn Jóhanns, „umhverfisvæn“ því
hún er útbúin sérstökum filter sem
sleppir ekki ozoneyðandi efnum út í
andrúmsloftið. Hún er einnig búin
ryksafnara sem gerir það að verkum
að endurunninn pappír skaðar vélina
ekki. Xerox 5034 er meðalstór vél
sem útbúin er tækni sem aðeins hefur
verið í stærri Xerox vélum. Hún er
nánast hljóðlaus og byggir á nýrri
tækni í ljósprentun sem er að ekki er
lengur prentvals í tækinu heldur sér-
stakt belti sem gerir það að verkum
að hámarks prentgæði fást alltaf á
hvert eintak.
Jóhann segir ennfremur að það hafi
verið markmið Xerox fyrirtækisins
að leiðarvísirinn, sem fylgir vélinni,
verði minnst lesna bók í heimi því
markmiðið var að gera vélina eins ein-
falda í notkun og frekast var unnt án
þess að slaka á gæðakröufm. Vélin
ljósritar beggja vegna í sömu umferð
og er búin fullkomnum frumritamat-
ara með 10 hólfa raðara. Hún raðar
einnig heilum settum sjálfkrafa.
Skrifbær hf. flytur inn Sharp skrif-
stofutæki. Um er að ræða ritvélar,
sjóðvélar, ljósritunarvélar og myndr-
ita. Það, sem hefur vakið hvað mesta
athygli frá Sharp undanfarið, segir
Helgi Kristjánsson, sölumaður hjá
Skrifbæ, vera lítið tæki sem kallast
„Organizer“. Tækið er aðeins 10x20
cm að stærð og er ætlað fólki í við-
skiptaheiminum sem þarf að hafa
skipulag á hlutunum. Það gefur tí-
mann á ýmsum stöðum í heiminum
auk þess sem það er með innbyggðu
dagatali mörg ár fram í tímann. Hægt
er að láta það minna sig á dag og stund
jafn langt fram í tímann.
„Organizerinn“ er búinn fullkomnu
lyklaborði og en þannig hægt að vél-
rita á hann heilu bréfin. Nú er komið á
markaðinn nýtt tæki sem gerir not-
andanum kleift að setja „Organizer-
inn“ í samband við PC og Mackintosh
tölvur og prenta þannig út texta sem
hefur verið unninn á hann.
Tækið gefur kost á að búin sé til
símaskrá með nánast ótakmörkuðum
§ölda heimilisfanga og símanúmera.
Sharp er japanskt vörumerki en er
framleitt víða, m.a. í Evrópu. Sharp
FO-4100 myndritinn er t.d. fram-
leiddur í Evrópu fyrir Evrópumarkað
sem, að sögn Helga er markhópur
Á myndinni sjást sýnishorn af Sharp skrifstofutækjum frá Skrifbæ hf. Á
miðri mynd er Sharp 9.400 sem er þeirra nýjasta ljósritunarvél.
42