Frjáls verslun - 01.03.1991, Blaðsíða 20
FORSIÐUGREIN
Uppbygging gæðakerfis á
Iðntæknistofnun hefur staðið
yfir í nokkurn tíma eða frá því
ákvörðun þar um var tekin sl.
sumar. Hefur verkefnið gengið
samkvæmt áætlun og mark-
miðið er auðvitað að gera bet-
ur, auka framleiðni innan
stofnunarinnar og bæta þjón-
ustuna.
„Við sáum einfaldlega að markað-
urinn hér á landi mun þurfa að upp-
fylla alþjóðlega staðla sem tengjast
þeirri þjónustu sem við erum að
veita. Það þýðir að til þess að við
getum veitt þessum fyrirtækjum
þjónustu varðandi prófanir og eftir-
lit, verðum við að hafa vottuð gæða-
kerfi. Þess vegna var tekin ákvörð-
un um uppbyggingu gæðakerfis á
Iðntæknistofnun“, sagði Páll Kr.
Pálsson forstjóri í samtali.
Strax í upphafi var samin gæða-
stefna fyrir stofnunina. Hópar
starfsmanna hafa haft hana til hlið-
sjónar við markmiðasetningu í
hverjum starfshópi fyrir sig. Gæð-
astefnan var samin í samræmi við
ISO staðla. Ætlunin er að koma á
gæðakerfi á stofnuninni fyrir 1. nóv-
ember á þessu ári.
„Það má segja að upphaflegur til-
gangur þessa átaks hafi verið sá
sem ég lýsti, þ.e. að vera í stakk
búin að veita þá þjónustu sem við
ÞURFUM AÐ
MÆTA
AUKNUM
KRÖFUM
RÆTT VIÐ PÁL KR.
PÁLSSON FORSTJÓRA
IÐNTÆKNISTOFNUNAR
viljum veita og sýna fram á að við
værum með vottuð gæðakerfi. Við
nánari skoðun fórum við að kanna
hverju vottað gæðakerfi á svona
stofnun gæti skilað okkur í rekstrin-
um. Niðurstaðan er svipuð og al-
mennt gerist í öðrum fyrirtækjum,
m.a. bætt verkstjórn, betra skipu-
lag aðfanga, markvissari vinnu-
brögð og aukin framleiðni. Allt þetta
eflir fyrirtækið og treystir stöðu
þess á markaðnum", sagði Páll Kr.
Pálsson forstjóri.
Hann lagði á það áherslu að þessi
þróun í íslenskum fyrirtækjum væri
rétt að hefjast. „Ég bind hins vegar
miklar vonir við gæðastjómunina en
tel að hún muni fara hægt af stað en
að margfeldisáhrifin muni segja fljótt
til sín. Ég get tekið dæmi af stóru
fyrirtæki eins og ísal. Þar eru menn
að fá vottað gæðakerfi sem leiðir
það af sér að þeir gera sömu kröfur
til allra sinna birgja. Þannig mun það
gerast á tiltölulega skömmum tíma
að fá en stór fyrirtæki ríða á vaðið og
áður en varir hafa tugir og hundruð
fyrirtækja fylgt í kjölfarið. Ég spái
því að stærri þjónustufyrirtæki
muni leggja mikla áherslu á vottuð
gæðakerfi en að framleiðslufyrir-
tæki, t.d. í sjávarútvegi, sjái sig
knúin til að taka upp þessi vinnu-
brögð,“ sagði Páll Kr. Pálsson að
síðustu.
móti en hafa sama tilganginn: Að auka
gæðin. Það er m.a. gert með umbót-
um í rekstri, vörustjórnun og mikilli
áherslu á að virkja alla starfsmenn til
átaka.
Eins og áður sagði hafa Japanir náð
þjóða lengst í gæðastjómun og á síð-
ustu árum hafa Bandaríkjamenn fylgt
fast á eftir. Við þetta hefur skapast
samstaða meðal Evrópuríkja um að-
gerðir og birtast þær m.a. í sameigin-
legum innri markaði þeirra í lok árs
1992. Þar með telja menn sig geta náð
auknuhagræði, bætt samkeppnistöð-
una gagnvart öðrum mörkuðum og
spomað gegn vaxandi áhrifum efna-
hagssvæða eins og Japans og Banda-
ríkjanna.
Forsenda þess að hægt sé að
versla frjálst milli landa, eru sam-
ræmdar kröfur um eiginleika var-
anna. Smám saman hafa því þróast
staðlar á vegum EB og EFTA og er
þá stefnt að því að gera alþjóðastaðla
að þjóðarstöðlum í löndum samtak-
anna en semja sérstaka Evrópustaðla
þar sem á vantar. í kjölfarið hefur svo
Evrópubandalagið sett fram stefnu
um heildaraðferð við vottun og prófun
þar sem sýnt er fram á að vörur og
þjónusta fullnægi settum kröfum og
að réttir vottunaraðilar lýsi því yfir að
svo sé.
KRAFA Á ALÞJÓÐAMARKAÐI
í heildaraðferð Evrópubandalags-
ins við vottun og prófanir er lögð mikil
áhersla á gæðakerfi. Gæðastaðlarnir
ISO 900x voru samþykktir árið 1987
og á síðustu árum hefur sú krafa auk-
ist í Evrópu að framleiðendur leggi
fram vottorð um að gæðakerfi þeirra
samræmist þessum stöðlum. Hvað
íslensku fyrirtækin varðar gerist það
æ algengara að þau séu krafin um
vottuð gæðakerfi, sérstaklega þau
sem framleiða vörur til útflutnings.
Jóhannes Þorsteinsson er for-
stöðumaður staðladeildar Iðntækni-
stofnunar íslands, en hún fer með
yfirstjóm staðlamála hér á landi.
Hann sagði í samtali við Frjálsa versl-
un að nú væri verið að ljúka við að
þýða ISO 900x staðlana á íslensku og
aðlaga þá aðstæðum hér. Hann sagði
ljóst að með aukinni þátttöku íslend-
inga í alþjóðaverslun ykjust kröfur um
vottuð gæðakerfi héðan og því hlytu
20