Frjáls verslun - 01.03.1991, Síða 44
SKRIFSTOFUTÆKI
Sturla Eiríksson og Sigurður Guðmundsson hjá Agli Guttormssyni Fjölvali
standa hér við eina af Mita ljósritunarvélunum.
Riso fjölritinn prentar frá 60-130
eintök á mínútu og hentar vel þar sem
þarf að fjölfalda mikið magn af prent-
uðu máli. Sigurður Guðmundsson,
sölustjóri fyrirtækisins, segir að
fyrstu fimmtán til tuttugu eintökin,
sem fjölfölduð eru, séu dýrari en úr
ljósritunarvél en eftir það hríðlækki
kostnaðurinn og sé kominn niður í 33
aura við hundraðasta eintak. Hann
segir einnig að viðhaldskostnaður við
Riso fjölritana sé nánast enginn því
uppbygging fjölrita sé einfaldari en
t.d. ljósritunarvéla og slitfletir séu
nær eingöngu á gúmmívalsinum sem
færir blöðin til.
Fjölritinn er sjálfvirkur að miklu
leyti og lætur notandann vita hvað á
að gera næst með því að birta skipanir
í sérstökum glugga. Með stafræna
lespennanum, sem fylgir dýrari teg-
undinni, má leggja áherslu á ákveðin
atriði í texta, stroka út og bæta inn
ljósmyndum. Það er einnig möguleiki
á að minnka og stækka letur, breyta
um leturgerð og skipta um bakgrunn.
Að sögn Sturlu er hægt að breyta
litum með því að skipta um tromlu og
er val um 6 liti.
Hægt er að tengja fjölritann sér-
stökum raðara sem gerir honum kleift
að raða síðum í skýrslur eða jafnvel
bækur í endanlega röð.
Riso kynnir um þessar mundir
tengingu fjölrita við tölvur starfs-
manna þannig að hægt verður að
senda texta úr ritvinnslu tölvunnar
beint í fjölritann.
Egill Guttormsson-Fjölval hf. flyt-
ur einnig inn Mita ljósritunarvélarnar
sem hafa verið á markaðnum hér á
landi í tólf ár. Þessar vélar voru fram-
leiddar undir öðrum vörumerkjum
þar til árið 1977 að fyrirtækið hóf
framleiðslu undir eigin nafni og að
sögn Sigurðar er Mita orðinn einn af
stærstu framleiðendum ljósritunar-
véla í dag. Hann segir þá hafa allar
stærðir og gerðir af ljósritunarvélum
á boðstólum, allt frá vélum sem ljós-
rita frá 8 eintökum á mínútu til véla
sem ljósrita 85 eintök á mínútu. Þá
framleiðir Mita vélar, sem ljósrita A0
teikningar, og einnig A2 vélar með
minnkun og stækkun fyrir teikningar.
Við stærri vélarnar frá Mita er
hægt að fá frumritamatara og afrita-
raðara sem ganga frá afritum saman-
brotnum og samanheftuðum. Mita
framleiðir einnig vélar sem ljósrita
ljósmyndir með góðum árangri.
Jónas Hreinsson hjá Tæknivali í verslun fyrirtækisins þar sem allar þeirra
vörur eru seldar.
TÆKNIVAL HF.
Að sögn Jónasar Hreinssonar hjá
Tæknivali leggur fyrirtækið áherslu á
að þjóna skrifstofum hvað varðar öll
þau tæki og tól, sem þær þurfa að
vera búnar, nema ritföng. Fyrir utan
tölvurnar segir Jónas þá hafa sérhæft
sig í öryggistækjum fyrir skrifstof-
una. Þessi tæki eru hlutir eins og
pappírstætarar, sem eru að verða
nauðsynlegir á hverri skrifstofu eins
og dæmin hafa sannað, skjáhlífar til
verndar augum og húð, varaaflgjafar,
sem eru nokkurskonar rafhlaða fyrir
rafmagnstæki til að þau skemmist
ekki ef rafmagn fer skyndilega af, af-
ritunarstöðvar fyrir tölvur, sem taka
afrit af öllu því, sem unnið er þann
daginn, og er þá engin hætta á að texti
glatist og hjóðdeyfar fyrir prentara.
44