Frjáls verslun - 01.03.1991, Side 46
SKRIFSTOFUTÆKI
tækni sem gerir notandanum kleift að
stækka myndir, teygja á myndum,
setja „negatívur“ yfir á pappír,
stækka af „slides" myndum, ljósrita í
lit á glærur, setja litmyndir á fatnað,
fjölfalda eina mynd á sama blaðið, t.d.
nafnspjöld, stækka eina mynd á mörg
A-3 blöð o.fl. Ljósritunarstofan Nón
hf. hefur fest kaup á tveimur fyrstu
vélunum.
Canon fyrirtækið, sem er einn
stærsti framleiðandi ljósritunarvéla í
heiminum, setti nýlega á markaðinn
litla Ijósritunarvél, Canon PC/11. Hún
ljósritar 10 blöð á mínútu og stækkar
og minnkar stiglaust á bilinu 70-
122%. Fyrirrennari vélarinnar er
Canon PC-20.
Skrifvélin flytur inn Canon litmyndaljósritunarvélina en hún getur t.d.
stækkað eina litmynd á mörg A-3 blöð.
OPTIMfl
Fyrirtækið OPTÍMA, flytur inn
NASHUA skrifstofuvélar. Þorsteinn
Jónsson, sölustjóri, segir mestu við-
skipti þeirra vera í myndritum og ljós-
ritunarvélum. Optíma er með 17
gerðir ljósritunarvéla og 5 gerðir
myndrita.
Að sögn Þorsteins gerir Nashua
fyrirtækið geysilega miklar kröfur til
viðhalds- og viðgerðarþjónustu um-
boðsmanna sinna og segir hann þró-
unina vera þá að helstu framleiðendur
hanni vélar sem séu, að því er virðist,
með mjög svipaða eiginleika, svo að
munurinn liggi fyrst og fremst í end-
ingu tækjanna, verðinu og hversu
góða viðhaldsþjónustu söluaðilarnir
veiti.
Stærstu Nashua ljósritunarvélarn-
ar segir Þorsteinn að taki 72 ljósrit á
mínútu. Þær raða afritunum saman í
sett og hefta þau í lokin. Meðalstórar
vélar taka 35-50 ljósrit á mínútu og
eru fáanlegar með öllum þeim auka-
búnaði sem venjuleg skrifstofa þarf á
að halda.
Nashua vélarnar eru með sérstaka
siliconsmurða hitavalsa, sem endast
lengur en aðrir valsar og gera það að
verkum að auðveldara er að ljósrita
beggja vegna á pappírinn.
Minni vélarnar eru að mestu
byggðar upp af skiptanlegum eining-
um og nota myndbelti í stað mynd-
tromlu. Myndbeltin henta vel í vélar
sem ætlaðar eru fyrir tiltölulega litla
notkun og skipt er um þau með einu
haldtaki þegar endurnýjunar er þörf.
Myndritar eru nú fáanlegir allt frá
mjög ódýrum og einföldum tækjum,
sem segja má að henti vel til heimilis-
notkunar, upp í mjög fullkomin tæki
með minni, fjöldasendingum o.fl.
Fyrir utan ljósritunarvélar og
myndrita flytur Optíma inn fjölrita
fyrir skóla og aðra stærri notendur,
gormabinditæki fyrir skýrslur og
skjöl og binditæki sem líma kápur á
skýrslur.
Þorsteinn segir Nashua litaljós-
ritunarvélarnar orðnar mjög full-
komnar, en markaðurinn hér sé raun-
verulega of lítill fyrir svo dýrar og
þjónustufrekar vélar. Hann segir að í
Bandaríkjunum hafi verið íhugað al-
varlega að setja litaljósritunarvélar á
bannlista vegna hættunnar á að þær
verði notaðar til að falsa skjöl og jafn-
vel peninga.
Optíma flytur inn þessar Nashua skrifstofuvélar.
46