Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1991, Side 47

Frjáls verslun - 01.03.1991, Side 47
KJARAN HF. Finnur Bergmannsson, sölumaður hjá Kjaran-skrifstofubúnaði, segir að af skrifstofutækjum selji þeir Minolta ljósritunarvélar, AEG Olympia ritvél- ar, EBA pappírshnífa og -tætara, myndvarpa, eldtrausta peninga- og öryggisskápa, örfihnulesara og tæki sem stimpla póstburðargjöld. Helstu nýjngarnar segir hann vera í Minolta ljósritunarvelum og AEG 01- ympia ritvélum. Að sögn Finns var Minolta fyrir- tækið fyrst til að kynna ljósritunarvél sem tekur 3 liti í einni umferð. Hann segir þessa vél vera vel samkeppnis- færa því hún sé lítið dýrari en venju- legar A-3 ljósritunarvélar. Hún er framleidd með innbyggðum svörtum lit en kaupandi getur ráðið hvort hann kaupir aukalitina með strax eða seinna því hægt er að bæta þeim við hvenær sem er með litlum tilkostn- aði. Vélin tekur 23 blöð á mínútu mið- að við þriggja lita prentun í einni um- ferð. Hún er einnig með stiglausa stækkun og minnkun, mismunandi spássíumöguleika og ljósritar báðar síður bókar í einu á tvö blöð. Fáanlegir eru ýmsir aukahlutir við vélina, svo sem frumritamatarar, 10 og 20 hólfa raðarar og tæki sem snýr afriti og frumriti sjálfkrafa fyrir ljósrit- un beggja vegna. Ritvélarnar, sem Kjaran kynnir um þessar mundir, eru AEG OLYMPIA Carrera II og II MD. Þetta eru nýjar vélar fyrir skóla- markaðinn og eru þær fyrirferðarlitl- ar og með loki og handfangi. Að sögn Finns eru þessar vélar með öllum þeim möguleikum, sem ritvélar hafa upp á að bjóða í dag, m.a. gleiðletrun, feitletrun, undirstrikun og miðjun. Carrera vélamar geyma eina línu í minni fyrir sjálfkrafa leiðréttingu og hægt er að prenta síðurnar út jafnóð- um eða allar í einu eftir að búið er að vélrita. Möguleikar á eintakafjölda eru ótakmarkaðir. Vélin vinnur mikið Finnur Bergmannsson hjá Kjaran hf. stendur við nýju Minolta litaljós- ritunarvélina sem tekur 3 liti í einni umferð. til eins og tölva og er með minni upp á 12 K. Hægt er að mata hana á stöðl- uðu forriti og er dýrari tegundin með litlum skjá ofan á vélinni þar sem síð- asta lína er sjáanleg. Allt í fundaherbergið og kennslustofuna A+K Visuline kerfið, fyrir upplýsingamiðlun og framsetningu. - i t. • • tNTrmocsTAN 11 r A«K raRTABU 1 • \ i 1 m \j NOBO fundarborð og stólar Rafdrifin sýningartjöld SIMDA skyggnusýningarvélar TEIKNIÞJONUSTAN sf., funda- og kennslubúnaður BOLHOLTI 6 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 91-82099 SALA ■ LEIGA

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.