Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1991, Síða 62

Frjáls verslun - 01.03.1991, Síða 62
VMnm fssmmmmma „Fjárfestingarlánasjóðirnir eru eins ólíkir og þeir eru margir. Þetta tekur til stærðar þeirra og styrkleika, skipulags og starfshátta. Þess vegna er mjög villandi að lýsa þeim í einu lagi og fella dóma um starfsemi þeirra eins og oft er gert.“ bréfafyrirtækin. Það fyrirkomulag er þekkt víða er- lendis. Stóri vand- inn þarna er gjald- þrot gamla hús- næðislánakerfis- ins sem lendir á endanum á ríkis- sjóði og þjóðinni. í öðru lagi er um að ræða at- vinnuvegasjóði. Þar eru þrír sjóðir í sérflokki að því er varðar stærð og eiginfjárstöðu. Útlán Fiskveiða- sjóðs nema um 15 milljörðum króna, Iðnlánasjóðs 10 milljörðum króna og Iðnþróunar- sjóðs um 5 mil- Ijörðum króna. Auk þeirra eru í þessu flokki m.a. Stofnlánadeild land- búnaðarins, Veðdeild Búnaðarbank- ans, Framleiðnisjóður landbúnaðar- ins, Verslunarlánasjóður, Stofnlána- deild samvinnufélaga, Ferðamálasjóður, Útflutningslána- sjóður o.fl. I þriðja lagi eru svo stuðningssjóðir hins opinbera. Þar er um að ræða Byggðasjóð, Atvinnuleysistrygginga- sjóð, Hlutafjársjóð og Framkvæmda- sjóð Islands, svo þeir helstu séu nefndir. Þessir síðastnefndu eru reknir sem tæki ríkisins til að beina ijármagni til starfsemi sem ekki þarf endilega að búast við að standi undir sér. I mörgum tilvikum er um að ræða leið til að veita atvinnustarfsemi og landssvæðum styrki frá hinu opin- bera með þeim hætti að þeir lendi ekki strax sem endanleg útgjöld á rík- issjóði. Aðferð til þess oft og tíðum að fresta því að horfast í augu við vanda- mál. Eins og sjá má eru þessir þrír meg- inflokkar fjárfestingarlánasjóða gjör- ólíkir og því er engan veginn viðeig- andi að fjalla um þá í sömu andrá, eins og dæmin sanna að því miður hefur verið gert. Endurskipulagning sjóðanna þarf að koma neðan frá. Þeir þurfa sjálfir að semja um það sín á milli að samein- ast eða að einn yfirtaki annan. Það hefur þegar gerst að smærri sjóðir hafa runnið inn í hina stærri. Þannig tók Iðnlánasjóður Iðnrekstrarsjóð yfir árið 1984. Hann er nú vöruþró- unar- og markaðsdeild hjá okkur. Ár- ið 1990 tók Iðnlánasjóður einnig yfir Þróunarsjóð lagmetisins og eins mætti hugsa sér að Útflutningslána- sjóður rynni inn í Iðnlánasjóð. Það gæti átt vel við. Þá hefur komið til álita að Verslunarlánasjóður gengi inn í íslandsbanka, þó ekkert hafi verið ákveðið ennþá í því efni. SJÓÐUM FÆKKAR Sjóðunum er þegar farið að fækka og þeim mun fækka af sjálfu sér með samningum þeirra á milli. Fyrirmæli eiga ekki að koma að ofan með vald- boði sem felst í því að steypa öllu saman og freista þess að búa til sam- stæða heild úr ósamstæðum þáttum. Það getur ekki gengið.“ Hvað verður um stuðningssjóði hins opinbera sem þú nefnir svo? „Stuðningssjóðirnir verða eflaust áfram. Ríkisvaldið getur ekki hlaupist frá þeim fyrirvaralaust. Þeim hefur verið gert að lána í miklum mæli í starfsemi sem aldrei mun greiða til baka. Eigið fé þeirra er í mörgum tilvikum upp urið og ríkissjóður verður að vinda of- an af vandanum, enda ábyrgur fyrir honum. Þessum sjóðum verður ekki þvingað upp á þá sjóði sem eiga mikið raunverulegt eigið fé. Vandinn verður ekki leyst- ur þannig. Stjómvöld verða að gera upp hug sinn um hvað þau vilja gera og hvaða stefnu á að marka. Þau verða að ákveða hvernig undið verði ofan af vanda styrktar- sjóðanna. Hér er um pólitískt mál að ræða, eins og t.d. það hvernig byggð- astefnan eigi að vera. Það þarf að koma heildarlöggjöf um fjárfestingarlánasjóði atvinnuveg- anna, löggjöf sem verði í svipuðum farvegi og viðskiptabankalögin. Þar þyrfti m.a. að taka afstöðu til reglna um eigið fé, verkaskiptingu fram- kvæmdastjóra og stjórnar, útlánar- eglur og eftirlit. Skýr lagarammi mun auðvelda þá endurskipulagningu neðan frá, sem ég nefndi áður, en ég get ekki spáð um hve langan tíma hún tæki.“ Sjóðir iðnaðarins eru tveir. Væri ekki eðlilegra að Iðnlánasjóður og Iðnþróunarsjóður rynnu saman í eitt? Þessir tveir sjóðir hafa svipaðan viðskiptavinahóp en annað eignar- hald. Iðnþróunarsjóður er norrænn sjóður sem stofnaður var árið 1970, þegar ísland gekk í EFTA, með stofnfé frá hinum Norðurlöndunum. Fyrir liggur að árið 1995 verður ísland búið að endurgreiða stofnféð og þá verður sjóðurinn eign íslenska ríkis- ins. Iðnlánasjóður er hins vegar sjálfs- eignarstofnun sem byggð hefur verið upp að 70% hluta af iðnaðinum sjálfum með iðnlánasjóðsgjaldi og að 30% hluta af ríkinu. Sjóðurinn hefur verið í 62

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.