Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1992, Page 19

Frjáls verslun - 01.04.1992, Page 19
Procordia sem er dótturfyrirtæki Volvo í Svíþjóð. Flestir kannast eink- um við Volvo vegna bílanna en þótt einkennilegt megi virðast er bílafram- leiðsla minnihlutinn af umsvifum Volvo. Fyrirtækið er stórtækt í mat- vælaiðnaði og Abba var öflugt fyrir- tæki í saltfiskviðskiptum þegar ákveðið var að hætta á þeim vett- vangi árið 1988 og selja þann hluta rekstrarins. Abba átti margar salt- fiskverksmiðjur og árið 1990 var röð- in komin að því að selja Nord-Morue. SÍF var í viðskiptum við verksmiðj- una, seldi henni flattan saltfisk. SÍF barst til eyrna að fyrirtækið væri til sölu og fór í að kanna möguleika á kaupum. Sighvatur tók þátt í undir- búningi málsins með Magnúsi Gunn- arssyni og fleiri frammámönnum hjá SÍF. Samkomulag náðist um kaup á fyrirtækinu og var verðið 19 milljónir franskra franka eða um 200 milljónir króna á núverandi gengi. Sumarið 1990 tók hann til starfa sem aðstoðar- framkvæmdastjóri en var ráðinn framkvæmdastjóri fyrirtækisins haustið 1990. Sighvatur tók við af frönskum manni og hefur unnið að endurskipulagningu fyrirtækisins og eflingu rekstrarins síðan. í fyrra varð mikil aukning umsvifa hjá Nord-Mor- ue. Veltan jókst úr 145 milljónum franka í 210 milljónir. Það jafngildir 2.2 milljörðum íslenskra króna. Fjöldi starfsmanna fór úr 96 í 150 og fram- leiðslan jókst úr 4.500 tonnum í 6.700 tonn. Á þessu ári gera þeir sér vonir um að framleiða meira en 7 þúsund tonn og að veltan verði 230-240 millj- ónir franka. Fyrirtækið er rekið með hagnaði en það, sem eiganda þess, SÍF á íslandi, þykir mest um vert, er að þessi rekstur gerir það að verkum að unnt er að skila heim til Islands hærra verði fyrir þær sjávarafurðir, sem fluttar eru út til vinnslu í verk- smiðjunni, en ella væri. Ein ástæða þess er sú að með því að nýta kæligeymslur Nord-Morue til fullnustu og flytja til fyrirtækisins ís- lenskan saltfisk á þeim tíma árs þegar tollfrjáls kvóti er inn í Evrópubanda- lagið sparast gífurlegar fjárhæðir sem annars færu í 13% tollinn síðar á ár- inu. í byrjun ársins er enginn tollur á flöttum saltfiski á meðan kvóti endist. Loftmyndin sýnir húsakynni verksmiðju Nord-Morue. í baksýn eru frönsk vínhéruð. Fyrirtækið er staðsett í smábæ um 80 kílómetra frá Bordaux. Sighvatur Bjarnason segir að kaupverð verksmiðjunnar, sem nam um 200 milljónum króna á núverandi verðlagi, hafi þegar sparast í þeim tollasparn- aði sem falist hefur í því að fyrirtækið hefur getað nýtt kæligeymslur sínar til að kaupa saltfisk frá Islandi á þeim tíma árs þegar unnt er að hagnýta sér tollfrjálsan kvóta á innflutningi saltfisks inn í Efnahagsbandalagið. Síðan hækkar hann í 6% og endar í 13% tolli. Tollur á öðrum flöttum salt- fiskafurðum er 12% allt árið en 20% á þorskflökum og 16% á flökum og öðr- um tegundum. KAUPVERÐIÐ HEFUR SPARAST MEÐ T0LLAHAGRÆÐI „Það má gera því skóna,“ segir Sighvatur, „að með því að nýta að- stöðu okkar hér á réttan hátt hafi kaupverð verksmiðjunnar þegar sparast með því tollahagræði sem náðst hefur og íslendingar hefðu ekki getað náð án þess að hafa svona að- stöðu.“ Á Islandi heyrir fólk einkum talað um útflutning á saltfiski til Suður- Evrópu og Suður-Ameríku. Þá er um að ræða lönd eins og Spán, Portúgal, Ítalíu, Grikkland og Brasilíu. Færri hafa gert sér ljóst að Frakkland er mikið saltfiskland. Sighvatur er beð- inn að skýra hvers vegna Frakkland sé í hópi öflugra saltfiskþjóða. 19
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.