Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1992, Page 20

Frjáls verslun - 01.04.1992, Page 20
SJAVARUTVEGUR Á Áhersla er lögð á vöruþróun og aðgengilega pökkun vörunnar þannig að hún sé kaupendum aðgengileg í alla staði. Á þessari mynd getur að líta nokkrar tegundir eins og þær birtast neytendum í stórmörkuðum. Til fróðleiks má geta þess að verð pr. kg. af saltfiski út úr stórmarkaði í Frakklandi er yfirleitt 700,- til 900,- íslenskar krónur. Reyktur fiskur fer upp í 1.000,- krónur en eftirspurn eftir reyktum afurðum fer mjög vaxandi. Nord-Morue mætir þeirri eftirspurn m.a. með því að flytja inn síld frá Islandi og reykja hana fyrir franskan neytendamarkað. „Saltfiskhefðin tengist kaþólsku trúnni út af föstum vikumar fyrir jól og páska. Saltfiskneysla í Frakklandi er um 12 þúsund tonn á ári. Þar af kemur um helmingur frá íslandi. Eitt af því, sem hefur mikil áhrif á salt- fiskneysluna hér, er sú staðreynd að í Frakklandi býr um ein og hálf milljón Portúgala. Það er mikið í ljósi þess að í Portúgal eru einungis um 10 milljónir íbúa. Saltfiskneyslan hér er mest í París, Lyon, Bordaux og á svæðunum þar í kring og niður til spænsku landamær- anna. Neyslan á ári per mann hér í Frakk- landi er einungis um 200 grömm af saltfiski. Til samanburðar má geta þess að í sumum löndum í Karíbahaf- inu fer ársneysla á mann upp í 8 kíló!“ Við markaðssetningu í Frakklandi skipta stórmarkaðamir mjög miklu máli fyrir sölu Nord-Morue. Það hef- ur náðst mjög góður árangur hjá fyrir- tækinu í að selja til stórmarkaðanna. Nord-Morue selur til 67% allra stór- markaða í Frakklandi, samkvæmt niðurstöðum könnunar sem óháð markaðskönnunarfyrirtæki gerði. VERÐUM AÐ GJÖRÞEKKJA ÞARFIR MARKAÐARINS Sighvatur segir að það sé flókið mál Nord-Morue þýðir „Norður-þorsk- ur“. Það fer vel á því þar sem bróður- partur hráefnis til framleiðslu í fyrirtækinu kemur úr norðurhöfum, mest frá íslandi eða 64% þess hrá- efnis sem fyrirtækið keypti á síðasta ári. að selja til stórmarkaðanna og að það sé alveg óhjákvæmilegt fyrir þá að kunna mannganginn í þeim viðskipt- um því þýðing stórmarkaðanna sé mjög mikil fyrir markaðssetningu á þessum vörum: „Það er mikið talað um það heima að fullvinna aflann og koma honum í það horf sem fólk vill þegar það gerir innkaup sín í verslunum. Þetta er alveg rétt viðhorf. En menn verða að vita nákvæmlega hvernig á að gera þetta. Menn verða að gjörþekkja þarfir markaðarins og menn þurfa að vita hvað fólkið vill. Annars er ekki til neins að fullvinna. Það þýðir ekki að búa til einhverja fullumia vöru sem markaðurinn vill ekki. Við þurfum einnig að þekkja til hlítar þá skilmála, sem stórmarkaðamir vinna eftir, og þær umgengnisvenjur sem gilda í samskiptum þeirra og seljenda. Ætli menn að ná árangri í viðskiptum við stórmarkaði hér í Frakklandi verða þeir að geta boðið rétta vöru á réttum tíma á réttu verði. Hljómar einfalt en er býsna flókið mál. Ef íslendingar ætla að ná árangri á þessu sviði þurfa þeir að koma sér upp fyrirtækjum á sjálfum mörkuðun- um sem eru í nálægð við neytendur. Helst þurfa fyrirtækin að vera fram- leiðslufyrirtæki. Gangi það ekki þurfa þau að minnsta kosti að vera dreifing- arfyrirtæki. f kynningarstarfi okkar leggjum við mikla áherslu á stórmarkaðina. Við erum með áætlun í gangi sem gerir ráð fyrir því að í 80 daga á ári séum við með beinar kynningar í stórmörkuð- um. Þá komum við okkur á framfæri með ýmsum hætti, t.d. með því að fá fólk til að bragða á þeim réttum sem unnt er að búa til úr framleiðslu okk- ar. Þá veitum við kynningarafslátt í tiltekinn tíma og við kynnum fyrir- tækið auðvitað líka í fjölmiðlum. Þegar viðskiptavinir okkar koma hingað í heimsókn reynum við jafnan að fara með þá á veitingastaði sem matreiða vörur frá okkur. Það gefur ávallt góða raun því réttir úr saltfiski eru ákaflega góðir — oft mun betri en menn gera sér í hugarlund. Nord-Morue dreifir vörum að jafn- aði til 500 kaupenda í Frakklandi í hverri viku. Auk þess er selt til út- landa, t.d. til Martinigue, Guatelupe, 20
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.