Frjáls verslun - 01.10.1995, Page 8
Faðir Bjarkar, Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnað-
arsambands íslands, óskar hér dóttur sinni til hamingju með
heiðurinn. Og það verður ekki betur gert en með rembings-
kossi.
Tímaritið Nýtt líf valdi
Björk Guðmundsdóttur
söngkonu sem konu árs-
ins 1995. Þetta er í
fimmta skiptið á jafn
mörgum árum sem tíma-
ritið velur konu ársins.
Útnefningin fór fram í
Loftkastalanum þriðju-
daginn 19. desember.
Val Nýs lífs kom í sjálfu
sér ekki á óvart í þetta
skiptið. Björk hefur verið
stöðugt í sviðsljósinu
undanfarin ár eftir að hún
fluttist út til Bretlands og
sló í gegn í heimi alþjóð-
legra tónlistarmanna.
En Björk er meira en
söngkona, hún er einnig
stórt viðskiptaveldi. Ein
af athyglisverðustu
greinunum sem birtust í
Frjálsri verslun á árinu
var einmitt um viðskipta-
veldið Björk Guðmunds-
dóttur.
Við áætluðum að tekj-
ur hennar af plötusölu
Debut og Post væru yfir 1
milljarður króna, að
minnsta kosti. Tekjur
hennar sem listamanns
eru hins vegar mun
meiri. Við slepptum tekj-
um hennar af spilun í út-
varpi og sjónvarpi, af
seldum lögum til annarra
tónlistarmanna, af seld-
um lögum í kvikmyndir,
af hljómleikaferðum, af
sölu á varningi merktum
stjörnunni og öðrum tekj-
um sem kunna að renna í
hennar hlut.
Björk er þekktasti ís-
lendingurinn á erlendri
grund. Hún er alþjóðleg
stórstjarna og stórfyrir-
tæki.
Ein af athyglisverðustu
fréttaskýringum Frjálsrar
verslunar á árinu var einmitt
um viðskiptaveldið Björk
Guðmundsdóttur.
Frá útnefningu Nýs lífs á
Björk sem konu ársins. Frá vinstri:
Hreggviðsson, stjórnarformaður Fróða, Sigríður Anna Sig-
urðardóttir gullsmiður sem smíðaði verðlaunin og afhenti
þau, Björk, faðir hennar, Guðmundur Gunnarsson, og Gull-
veig Sæmundsdóttir, ritstjóri Nýs Iífs.
■ ■
BJORK VALIN KONA ARSINS
8