Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1995, Page 15

Frjáls verslun - 01.10.1995, Page 15
SU FJOLSOTTASTA Á ÁRINU1995 Yfir 160 manns sóttu þessa tölvuráðstefnu Software AG og tímaritsins Datamation. Martin Caddick, svæðisstjóri Software AG á fs- landi, var fundar- stjóri. Frosti Bergsson, forstjóri Opinna kerfa, til hægri, og Jón Ragnar Hösk- uldsson, framkvæmdastjóri Tölvum- iðstöðvar sparisjóðanna, ræðast hér við í kaffihléi. Fjölsóttasta ráöstefn- an á íslandi um tölvumál á árinu 1995 var ráð- stefna sem Software AG og tímaritið Datamation héldu á Hótel Loftleiðum hinn 13. desember sl. Heiti ráðstefnunnar var Vöruhús gagna. Þetta reyndist vera fjölsóttasta ráðstefnan sem haldin var um tölvur og tölvumál hér á landi á árinu 1995, að sögn Halldórs J. Jörg- enssonar, framkvæmda- stjóra Software AG á Is- landi. Software AG og tíma- ritið Datamation héldu ráðstefnuna í mörgum heimsborgum á þessu ári. Hvarvetna var ráðstefn- an fjölsótt. Svo reyndist einnig vera þegar hún var haldin í heimsborginni Reykjavík, yfir 160 manns mættu. Aðalræðumaður á ráð- stefnunni var Geoff Horn frá Barclays bankanum en aðrir fyrirlesarar voru Katharina Nowotny frá Software AG og Hrafnkell Gíslason frá Skýrr. Að loknum erindum voru hringborðsumræður með þátttöku ofangreindra ræðumanna, ásamt full- trúum frá Opnum kerfum hf. og öðrum sérfróðum aðilum. G. BEN. cJcL tölvupappir fyrir þig SMIÐJUVEGUR 3 • 200 KÓPAVOGUR • SÍMAR 554 5000 - 564 1499 • BRÉFASÍMAR 554 6681 - 564 1498

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.