Frjáls verslun - 01.10.1995, Page 19
Við það kom verulegur kippur í mark-
aðsstarfið. Þegar hann kom til starfa
voru starfsmenn fimmtán en eru nú
orðnirrúmlegafimmtíu. „ViðTryggvi
störfum náið saman, hann er heilinn á
bak við markaðsstarfið," segir Öss-
ur. Við það að láta af daglegri stjóm
gefst Össuri meiri tími til að sinna
uppfinningum og vinna þróunarvinnu
sem er lykillinn að uppgangi fyrirtæk-
isins. Hann er einfaldlega að vinna
það verk sem hann er bestur í. Það er
skynsamleg stjómun.
Vörur frá Össuri hf. em nú seldar
til yfir tuttugu landa. Bandaríkin eru
aðalmarkaður fyrirtækisins. Össur
segir hins vegar að fyrirtækið líti á
heiminn allan sem markað fyrir vömr
þess. Það eru orð að sönnu. Vörur
þess gera lrfið auðveldara fyrir fatlað
fólk.
Össur á skrifstofu sinni með teikni-
forritið í tölvunni. Hann tekur dag-
inn snemma og er iðulega sestur
fyrir framan tölvuna heima hjá sér
upp úr klukkan sjö á morgnana.
„EINFÆTTUR í KNATTSPYRNU"
Enda sagði Brynjólfur Sigurðsson,
formaður nefndar útflutningsverð-
launa forseta íslands, þegar hann
veitti Össuri hf. útflutningsverðlaunin
árið 1992: „Sú staðreynd að einfættur
maður geti leikið knattspyrnu án þess
að þjálfari liðsins viti um örkumlin fyrr
en það óhapp vill til að fóturinn, sem
sparkað var með, flýgur á eftir knett-
inum í markið, segir meira en öll orð
um eiginleika vara Össurar hf.!“
8 Helstu vörur Össurar hf. eru:
A ICEROSS silikonhulsan. Hún er helsta
söluvara fyrirtækisins og selst mest í
Bandarikjunum.
B GERVIÖKKLALIÐIR sem hægt er að
stilla að þörfum hvers og eins.
Einnig ýmsar STUÐNINGSVÖRUR.
C Sérstakt MÓTATÆKI sem notað er til
að taka mót af stúfnum undir þrýstingi.
Þetta er hin svonefnda lcecast-tækni
fyrirtækisins.
4 Markmið: Að hafa 10% hagnað af veltu
eftir skatta.
5 Markmið: Að veltan aukist um 30 til 40% á
ári á næstu árum. [ þeim tilgangi hafa
dótturfyrirtæki verið stofnuð erlendis.
6 Eiginfjárhlutfall Össurar hf. hefur
snarhækkað á undanförnum árum og er
núna 45%.
7 Össur hf. selur vörur sínar í yfir 20 löndum
um viða veröld.
19