Frjáls verslun - 01.10.1995, Page 20
Maður ársins í viðskiptalífinu, Össur Kristinsson, er 52 ára, fæddur 5.
nóvember 1943. Hann stofnaði fyrirtæki sitt árið 1971 eftir að hann kom
heim frá Svíþjóð. Hann er einn helsti uppfinningamaður á sínu sviði í
heiminum. Hann hefur þjónustað fatlað fólk á íslandi í 25 ár. Nú flytur
hann hugvit sitt út til yfir 20 landa með frábærum árangri.
AÐVERA
Kópavogi. í tölvunni er teikniforrit
sem Össur sökkvir sér í. Hljómflutn-
ingstæki með stórum hátölurum og
fjöldi klassískra geisladiska eru á
skrifstofunni og gefa til kynna að þar
geti ríkt róleg stemning hugsuðarins
enda líkar Össuri vel að vinna hug-
myndavinnuna, lesa sérfræðitímarit
og fylgjast með hjólunum snúast.
Hann sinnir þó enn eldri viðskiptavin-
um sem vilja bara láta hann afgreiða
sig. Sumir þeirra hafa fengið hjálpar-
tæki frá fyrirtækinu í 25 ár.
ÚR LAUGARNESINU
Vöxtur Össurar hf. hefur verið æv-
intýralegur undanfarin ár en um 95%
af starfsemi fyrirtækisins miðast við
MAÐUR ARSINS
ssur Kristinsson var aðeins 19
ára gamall þegar hann var
kominn út til Stokkhólms að
læra stoðtækjasmíði. Sjálfur gengur
hann með gervifót og var ekki ánægð-
ur með það sem honum stóð til boða.
Hann hefur náð markmiðinu með þró-
un ICEROSS silikonhulsunnar.
Gervifætur eru oftast óþægilegir
fyrir notandann en með tilkomu sili-
konhulsunnar breyttist það mikið til
batnaðar. Össur hafði óbilandi trú á
uppfmningu sinni og líkir því við að allt
í einu hafi fengist dekk í stað tréhjóla.
En þar með var ekki látið staðar num-
ið. Þróunarvinnan hélt áfram og nýjar
vörur bættust við. Á næsta ári mun
fyrirtækið enn kynna nýja vöru. Það
eru ný efni og tækni til að búa til hörðu
hulsuna sem stúfurinn með silikon-
hulsu fer ofan í. Þessi tækni styttir
fimmfalt þann tíma sem tekur að
framleiða gervifót á mann. Hingað til
hefur sú aðgerð tekið 10 til 15 klukku-
stundir en með nýju tækninni styttist
tíminn niður í tvær til þrjár stundir.
Össur hefur ekki mikið komið fram
í fjölmiðlum. Framkvæmdastjóri
fyrirtækisins, Tryggvi Sveinbjörns-
VIÐTAL:
Elísabet Þorgeirsdóttir
MYNDIR:
Bragi Þ. Jósefsson
son, hefur séð að mestu um þau sam-
skipti undanfarið en Tryggvi tók við
mannahaldi og markaðsstarfi árið
1989. Eftir það einbeitti Össur sér að
rannsókna- og þróunarstarfinu í þró-
unardeildinni sem var stofnuð um líkt
leyti.
Þegar Össur er spurður hvemig
stjórnandi hann sé segist hann vera
heldur lélegur stjómandi. „Ég er svo-
lítið dogmatískur og of einráður. Ég
næ ágætis tökum á fólki en á frekar
erfitt með að vinna með öðrum. Þess
vegna vildi ég koma mannaumsvifum
af mér yfir á aðra,“ segir hann og
brosir góðlega.
Skrifstofa hans er á jarðhæð Hverf-
isgötu 105 en fyrirtækið hefur til um-
ráða nær alla þriðju hæð hússins og að
auki 800 m2 framleiðsluhúsnæði í
20