Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1995, Side 38

Frjáls verslun - 01.10.1995, Side 38
SAMNINGAR ákveðnum hlut, sinni sölunni ekki sem skyldi. Þá getur dreifingarsamn- ingur hafa verið gerður til þess að koma viðkomandi vöru út af markaðn- um því fyrirtækið ætlar sjálft að koma sambærilegri vöru á framfæri. Til þess að koma í veg fyrir slíkt þarf að semja um lágmarks söluárangur þar sem fyrirtækið skuldbindur sig til að selja ákveðið magn á tilgreindu tíma- bili. Ef ekki er staðið við það getur eigandi framleiðsluréttarins rift samningnum. Einnig þurfa að koma fram ákvæði um uppgjörs- og greiðslutímabil, rétt til skoðunar bók- haldsgagna að baki uppgjara o.fl. Mis- jafnt er hvort samningurinn felur í sér einkarétt til sölu og dreifingar vör- unnar og einnig er samningsatriði til hvaða svæða samningur nær. Sá sem fær einkarétt til dreifingar þarf að sjálfsögðu að greiða meira og til hans verða einnig gerðar ríkari kröfur um lágmarks söluárangur. Stundum get- ur verið æskilegt að gera slíkan samning en í sumum tilfellum getur verið betra að hafa marga um hituna allt eftir eðli vörunnar og markaðsað- stæðum hverju sinni. Þegar samið er um einkarétt til sölu þarf að skoða samkeppnisreglur ESB og Bandaríkj- anna og athuga t.d. hvort að samning- urinn geti fallið undir einhverja af hóp- undanþágureglugerðum ESB. Mikil- vægt er að menn vegi og meti í upphafi kosti og galla þessara sam- ingsgerða miðað við sínar sérstöku aðstæður og hagi samningaviðræðum sínum eftir því. „FRANCHISE" SAMNINGAR - SÉRLEYFISSAMNINGAR Mögulegt er að gera nytjaleyfis- samninga sem taka eingöngu til notk- unar vörumerkis eða notkunar vöru- merkis ásamt framleiðslurétti. Gott dæmi um slíkt er Coca Cola, en einnig er mögulegt að gera nytjaleyfissamn- ing um notkun vörumerkis ásamt öðr- um hugverkum, eða verkþekkingu auk ráðgjafar og þjónustu. Kallast slíkir samningar „franchise" samningar (sér- leyfissamningar) og hafa þeir færst mjög í vöxt undanfama tvo áratugi. „Þessi tegund samninga felur í sér gagnvirkt samband á milli aðila á með- an samningurinn er í gildi og snýst t.d. um ákveðna viðskiptahugmynd eða aðferð við að framleiða vöru og selja hana. McDonald’s er gott dæmi um fyrirtæki sem byggir starfsemi sína á samningum af þessu tagi en fleiri erlend fyrirtæki hafa gert slíka samninga við íslenska aðila. Margar hótel- og verslanakeðjur nota einnig þessa aðferð. Samningsaðili hér á ÞETTA SKALTU LESA! 1. Hugverka-og auðkennaréttur slápt- ist í fjóra meginflokka; höfundarétt, vörumerkjarétt, einkaleyfi og hönn- unarvemd. 2. Sameiginlegtmeðþessumréttindum er að þau veita rétthafanum ákveðna vemd gegn eftirgerð og annarri fjár- hagslegri hagnýtingu á þeirri vöm eða þjónustu sem hann vill markaðs- setja. 3. Ekki vanmeta verkþeldánguna (knowhow) en hún er oft talin til verðmætustu eigna í iðnaði og þjón- ustu. 4. Fyrsta skref vegna einkaleyfisum- sóknar felst yfirleitt í því að gera nýnæmiskönnun til að ganga úr skugga um að viðkomandi uppfinning sé raunverulega ný og sérstæð. 5. Oft er byijað á að sækja um einka- leyfi á íslandi og þegar það er fengið er rétt að huga að umsóknum erlend- is. 6. Reglur um atvinnu- og framleiðslu- leyndarmál (knowhow eða verk- þekking) veita ákveðna vemd þegar ekki er um að ræða vemd sam- kvæmt hugverka- og auðkennarétt. 7. í ýmsum tilvikum er hægt að fá skráða hönnunarvemd samkvæmt lögum sem tóku gildi í maí 1994. Slík vemd tekur til hugverka á sviði hönnunar og á einkum við útlit og gerð vöm og skreytingu hennar en ekki eiginleika vörunnar. 8. Munið mikilvægi vemdar vöm- merkja og firmanafna. Rétt er þó að geta þess að vörumerki geta notið vemdar þótt þau séu ekki skráð ef þau hafa náð tiltekinni markaðsfestu. 9. Höfundaréttur tekur fyrst og fremst til hinna hefðbundnu listgreina, svo sem kvikmyndalistar, tónlistar, byggingalistar, bólunennta, mynd- listar og leiklistar. Hann gildir einnig um t.d. tölvuforrit og hugbúnað og svokallaða nytjalist. 10. Höfundaréttur veitir mjög sterka og víðtæka vemd og er víðast hvar í heiminum ekki gerð krafa um skrán- ingu slíkra verka nema hvað í Banda- ríkjunum em tiltekin, mjög afmörkuð réttaráhiif bundin við skráningu. 11. í því tilfelli að einstaklingur, eða lítið fiárvana fyrirtæki, leggi af stað í leit að viðsemjendum erlendis má benda á þann möguleika að notfæra sér ýmsa gagnabanka, eins og Upplýs- ingaþjónustu Háskólans og Alnetið. 12. Þegar eigandi framleiðsluréttai' vill kynna hugsanlegum framleiðanda eða dreifingaraðila vöm sína segir hann frá hlutnum og hvað hann geti gert án þess að gefa upp hvemig farið sé að því. Þessi nálgun er oft kölluð „black box approach". 13. Algengt er að gera svokallaðan nytjaleyfissamning sem felst í að leigja takmörkuð réttindi. Margar tegundir em til af slíkum samning- um ogfer það m.a. eftir þvíá hvaða stigi umrædd hugmynd er. Ef um er að ræða fullbúna vöm ásamt þróuðu framleiðsluferli er gerður nytjaleyfissamningur sem tekur til annað hvom tveggja framleiðslu eða dreifingai' 14. Hér á landi er mikið um hugvits- menn en þá skortir fiáimagn. Með nytjaleyfissamningum er hugsan- lega hægt að fá fiársterka útlend- inga til að halda áfram þróunarvinnu og sjá um markaðssetningu sem getui' verið óhemju dýr. 15. Þegar gerður er framleiðslu- og/ eða dreifingarsamningur við ákveðið fyrirtæki er mikilvægt að tilgreina lágmarks söluskyldu því menn geta lent í því að ekkert selj- ist af vömnni og þeir fái þar með engar tekjur. 16. Einnig er mögulegt að gera nytja- leyfissamning um notkun vörum- erkis ásamt öðmm hugverkum, eða verkþekkingu, auk ráðgjafar og þjónustu. Kallast slíkir samningar „francliise“-samningar (sérleyfis- samningar) og hafa þeir færst mjög í vöxt undanfama tvo áratugi. 38

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.