Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1995, Page 47

Frjáls verslun - 01.10.1995, Page 47
faginu og einnig gamlir og góðir jaxl- ar.“ Hún telur að oft og tíðum séu íslensk fyrirtæki að fá góðar hug- myndir fyrir gott verð, „ef við berum okkur saman við útlönd.“ Samanburður við útlönd er ansi al- gengur meðal íslendinga og Ólafur tekur undir með Birnu hvað varðar hugmyndavinnu íslensks auglýsinga- fólks. „En þótt beinn samanburður við verðlag hér sé hagstæðara en í útlöndum er engu að síður of dýrt að auglýsa hérlendis vegna smæðar markaðarins. Bandarfkjamarkaður er til að mynda 900 sinnum stærri en sá íslenski, en það er ekki 900 sinnum ódýrara að auglýsa hér en þar.“ Ólafur segir að verðlag hjá auglýs- ingastofunum hafi staðið í stað og jafnvel lækkað á síðustu árum. „Það var til að mynda kostnaðarsamara að leita til auglýsingastofa fyrir tíu árum eða svo. Margir þættir, svo sem auk- in samkeppni og færri starfsmenn auglýsingastofanna, hafa auðveldað þeim að lækka verðið, auk þess sem tölvuvæðing þeirra hefur leitt af sér ánægjulega verðlækkun." En þótt tölvuvæðingin hafi lækkað kostnaðinn þykir ekki öllum kostnað- arlækkunin nægilega mikil. Bima segir til að mynda að tæknibyltingin í auglýsingagerðinni hafi ekki skilað sér í lægra verði til viðskiptavina aug- lýsingastofanna. Finnur er sammála Ólafi hvað varð- ar verðlækkunina og hann nefnir einnig aukna samkeppni og „að aug- lýsendur hafi haldið að sér höndunum og þar með hafi færri bitastæð verk- efni verið í boði.“ WÓNUSTAN Styrkur íslenskra auglýsingastofa liggur fyrst og fremst í hönnunar- og hugmyndavinnu, að sögn Finns. „Stofumar standa sig vel hvað varðar hönnun á umbúðum og öðrum hlutum fyrir prentverk, þar með eru taldar blaðaauglýsingar. Líkleg skýring á þessu er að kjaminn í menntun meiri- hluta starfsfólks auglýsingastofanna er grafísk hönnun. Og sú menntun skilar sér vel á þessu sviði.“ Bogi tekur undir þessi orð og segir að sé litið til heildarinnar virðist fram- leiðsluafstaða ráða meiru hjá stofun- Bima Einarsdóttir, markaðsstjóri íslandsbanka. Hún telur að oft á tíðum séu íslensk fyrirtæki að fá góðar hugmyndir hjá auglýsingastofum fyrir nokkuð gott verð borið saman við það sem gerist erlendis. Tæknibyltingin hafi hins vegar ekki skilað sér í nægilegri verðlækkun. um en markaðsafstaða. Tækifæri auglýsingastofanna em víða en þær virðast vera fastar í því að taka á móti óskum um verkefni í stað þess að koma með frumkvæði. „Þetta segir okkur kannski að stofumar hafi næg verkefni. En þær mega ekki gleyma tækifæmnum sem eru allt í kringum þær, til dæmis á stofnanamarkaðn- um.“ Að mati viðmælendanna skortir töluvert á frumkvæði auglýsingastof- anna og að þær hafi innsýn í markað viðsldptavina sinna. í auknum mæli hafa íslensk fyrirtæki fjárfest í vel menntuðu og hæfu markaðsfólki sem stýrir stefnumótandi markaðsstarfi innan fyrirtækjanna. Oftar en ekki er um dýra starfsmenn að ræða og því ástæðulaust að kaupa þá vinnu sem vel er hægt að vinna innan fyrirtækj- anna. Birtingaþjónusta auglýsingastof- anna hefur batnað mikið að sögn fjór- menninganna, einkanlega með til- komu birtingaforritana, neyslukann- ana og fleiri mælinga sem markaðurinn getur nýtt sér. Víða er unnið á mun kerfisbundnari hátt en áður var. Hins vegar segir Finnur að of fáar auglýsingastofur hafi „ijárfest í þeim upplýsingum sem nauðsynlegar eru til þess að geta boðið birtinga- þjónustu sem stendur undir nafni, Þær stofur sem ekki hafa slíkar upp- lýsingar geta ekki boðið fulla þjónustu og dæma sig því sjálfar út af markaðn- um.“ 47

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.