Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1995, Qupperneq 57

Frjáls verslun - 01.10.1995, Qupperneq 57
arðlaus sóun fjármuna búi til atvinnu um skamma hríð en komi í veg fyrir kjarabætur til lengri tíma litið. Þessu er ég sammála. Og þá vaknar spurningin: Hvað er til ráða? VERÐUM AÐ HÆTTA GULLGRAFARA HUGSUNARHÆTTINUM Atvinnustig og afkoma heimilanna byggist, þegar til langs tíma er litið, á því að á íslandi séu starfandi útflutn- ings- og samkeppnisfyrir- tæki sem skila góðum hagn- aði og því að starfsskilyrði atvinnulífsins séu slík að hægt sé að setja á stofn ný útflutnings- og samkeppnis- fyrirtæki sem hægt sé að reka með góðum hagnaði. Hin úr sér gengna núll- stefna stjómvalda, það er, þegar meðaltal fyrirtækja í sjávarútvegi, sem ekki greiða fyrir hráefni sitt til eigenda auðlindarinnar, vel að merkja, em rekin á núlli, er helstefna. Því, ef sjávar- útvegurinn er rekinn á núlli, hvað er þá að segja um þá starfsemi sem greiða þarf fullt gjald fyrir hráefni sín? Fmmforsendan er að við breytum hugsunarhætti okkar, áherslum og viðhorf- um. Við verðum að hætta gullgrafara- og veiðimanna hugsunarhættinum, hætta að bíða eftir stóra Lottó- vinningnum, hætta að bíða eftir því að einhver annar leysi málin fyrir okkur. Við verðum að fara að skilja að það em engar patent- lausnir sem leysa vandann sem við okkur blasir. Ekki álver, ekki zin- kverksmiðja, ekki rafstrengur til Skotlands og ekki aðild að Evrópu- sambandinu. Margt af þessu, sem ég nefni hér að ofan, er góðra gjalda vert en vandinn, sem við okkur blasir, er svo hrikalegur að ekkert dugir annað en gmndvallarbreyting á sjálfu efna- hagskerfinu, starfsskilyrðum at- vinnulífsins, til að einhver von sé til þess að okkur takist að vinna bug á Þróun útflutningsgreina Síðustu ár Fyrir 100 árum Hlutfall iðnaðar af útflutningi íslendinga hefur sáralít- ið breyst á 100 árum þrátt fyrir álver, járnblendi, kísil- iðju, inngöngu í EFTA og EES. Fyrir hundrað árum var útflutningur iðnaðarvara 14% en árið 1991 var hann 17%. Davíð Scheving Thorsteinsson er landskunnur at- hafnamaður. Hann var framkvæmdastjóri Smjörlíkis- Sólar í áratugi og formaður Félags íslenskra iðnrek- enda um árabil. vandanum. Við verðum að breyta hinni óvinsamlegu afstöðu okkar til atvinnurekstrar. Öfundin er þjóðar- löstur okkar íslendinga og hugsunar- hátturinn: Ef þú græðir þá ertu þjófur en ef þú tapar þá ertu aumingi, verður að breytast. MIKILVÆGT AÐ STÖÐUGLEIKINN HALDIST Stjómvöld verða að viðhalda þeim stöðugleika sem hér hefur ríkt um skeið. Það verður að hemja sveiflum- ar sem hingað til hafa tröllriðið efna- hagslífinu og þar með þær stórfelldu sveiflur sem hafa einkennt þróun raungengis hér á landi. Það verður að sjá til þess að aðgangur at- vinnulífsins að lánsfé sé greiður og að lánskjör séu samsvarandi og í þeim lönd- um sem við keppum við. Fyrirtæki þurfa að hafa að- gang að „þolinmóðu" fé til nýsköpunar og fjárfestinga. Við verðum að vera opin fyrir samvinnu og fjárfest- ingu erlendra aðila á íslandi. GJALD FYRIR AFNOT AF AUÐLINDUM SJÁVAR Síðast en ekki síst þá verðum við að taka upp gjald fyrir afnot af auðlindum sjáv- ar og jafnframt að lækka gengið, þannig að afkoma sjávarútvegsins skerðist ekki. Við verðum að lækka virðisaukaskatt á móti til að vega upp á móti verðhækk- ununum. Aðrar greinar þurfa að greiða fyrir hráefni sitt og því er það réttlætis- mál að sjávarútvegurinn geri það lílta. Það em hags- munir margra að gengið sé skráð miðað við það að sjáv- arútvegurinn greiði fyrir hráefni sitt. Ég tala hér ekki út frá þröngum sérhagsmunum iðnaðarins. Fólkið í iðnaðin- um á ekki eitt þessa hags- muni. Þá á líka fólkið í fisk- vinnslunni og þá ekki síst það sem fullvinnur sjávar- fang í notendaumbúðir, fólkið sem er að brydda upp á nýjungum í annarri matvælaframleiðslu til útflutnings, fólkið í ferðaþjónustunni, fólkið sem vill fást við lífræna ræktun landbúnað- arvara, jafnvel flestir bændur, verk- fræðingar, hönnuðir, fólk í hugbúnað- ar-, kvikmynda-, hljómdiska- og myndbandagerð sem vill leita fyrir sér á erlendum markaði. Allt þetta fólk, og eflaust miklu fleira, á samleið með fólkinu í útflutn- ings- og samkeppnisgreinum iðnaðar. Hagsmunirnir eru þeir sömu. 57
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.