Frjáls verslun - 01.10.1995, Blaðsíða 66
ÞJOÐLIF
„Nei, “ segirhöfundur greinarinnar og vitnar í Þórólf Þórlindsson prófessor:
„Hamingju Islendinga ekki aö leita í lífspægindum peirra heldur ópægindum“
Híslandi, sem er kuldalegur
staður í norðri, býr hamingju-
samasta þjóð í heimi. — Á
þessum orðum hefst grein í banda-
ríska viðskiptatímaritinu Forbes hinn
23. október sl. Höfundurinn, Richard
C. Morais, lýsirþvíhversu sterkáhrif
Iandið okkar hafði á hann. í upphafs-
orðunum er Richard að vitna í Gallup
könnun sem gerð var á hamingju átján
þjóða. Hann heldur áfram á þessa
leið: „Hvað ætli geri íslendinga svona
ánægða með lífið? Ég fann eina af
ástæðunum mitt í hraunbreiðunni."
Það er ekki eins og Richard þessi
hafi einungis komið hingað til lands í
eitt skipti og dregið ályktun sína af
einhveijum skyndikynnum við land
og þjóð heldur hefur hann komið hing-
að a.m.k. einu sinni á ári í nítján ár.
Niðurstaða könnunar Gallup fyrir-
tækisins kom honum því ekki á óvart.
í könnuninni var ísland í langefsta
sæti því 82% af íbúum landsins reynd-
ust vera ánægðir með lífið. í fimmta
sæti voru Bandaríkjamenn með 72%
en Japan var t.d. aðeins með 42% af
ánægðum íbúum. Óhamingjusamastir
voru Mexíkóbúar og Ungverjar en í
þessum tveimur löndum er tala þeirra
hamingjusömu miklu lægri en þeirra
óhamingjusömu.
Richard segir að margir haldi því
eflaust fram að niðurstöður könnun-
arinnar hljóti að vera tilviljun ein.
Landið sé svo lítið að hver sem er geti
fengið viðtalstíma hjá forsetanum. Og
hvað ætli ísland geti svo sem kennt
Ameríku með sín risastóru vanda-
mál? Samt er þetta önnur könnunin
sem sýnir að á íslandi býr hamingju-
samasta þjóð í heimi.
ER ÍSLAND UNDRALAND?
Er ísland kannski bara undraland?
„Nei,“ segir Ricard C. Morais, „ís-
land er ekkert undraland. I miðborg
Reykjavíkur steypast sjómenn ofan í
rennusteina, teyga brennivín og
syngja í þeim tilgangi að heyra sjálfa
sig öskra. íslendingar eru miklir
drykkjumenn, þó ekki eins miklir og
Finnar eða Danir, en á íslandi er
nokkur hefð fyrir því að fara á „fyllirí".
Siðgæðisvitund þjóðarinnar er heldur
ekki það sem sumir myndu hrópa
húrra fyrir. Sem dæmi má nefna að
um 330/0 bama eru fædd utan hjóna-
bands. En þetta er einmitt það sem
gerir Gallup könnunina svo áhuga-
Ungar mæður með böm sín í miðborg Reykjavíkur. „Á
íslandi er lægsta dánartíðni nýbura í heiminum og auk
þess eru Islendingar meðal þeirra sem lifa lengst.“
Þórir Hlynur Þórisson sjómaður eyddi sumarfríi sínu
sem leiðsögumaður í fullu starafi við Norðurá. Vinnan
þar var honum ánægja en ekki kvöl. Islendingar em
vinnualkar en þeir era hamingjusamir, segir í Forbes.
TEXTI: SÓLVEIG BALDURSDÓTTIR
66