Frjáls verslun - 01.07.1996, Qupperneq 14
, t.ar hefur fjöldi íslendinga
Manor House hótelið í ^iö2 óvænt fyrir átta árum.
gist frá því Magnús
■ ■ ■ agnús Steinþórs-
I 1 "i 1 son> hótelhaldari
í Englandi, hefúr
selt Manor House hótelið
sitt í Torquay. Hann hef-
ur í hyggju að kaupa íbúð-
ir í miðborg Lundúna og
leigja þær út, meðal ann-
ars til Islendinga sem eru
á ferð í heimsborginni.
Hótelið var búið að vera
til sölu um tíma.
Magnús keypti Manor
Ueypti hótelið mjög <
House Hotel fyrir um átta
árum og vöktu kaup hans
á hótelinu mikla athygli.
Hann starfaði áður sem
gullsmiður í Gulli og
silfri, ásamt bróður sín-
um, Sigurði G. Steinþórs-
syni, sem stýrt hefur því
fyrirtæki einn síðan.
Kaupandi Manor House
er evrópskt fyrirtæki sem
ætlar að reka hótelið með
óbreyttu sniði.
Fyrir nokkrum árum
var stofnað félag íslend-
inga um kaup á hlut í Man-
or House hótelinu. Um
500 manns gerðust félag-
ar og keyptu hlut, flestir
fyrir um 10 þúsund krónur
hver. Samtals var hlutur
félagsins um 15% af heild-
arhlutafénu í hótelinu. Af-
ganginn, 85%, áttu Magn-
ús og fjölskylda.
Magnús hefur boðist til
að greiða íslensku hlut-
höfunum hlutafé sitt til
baka á nafnverði eða þá
að fara með hlutafé þeirra
inn í þær íbúðir í London
sem hann íhugar að
kaupa. Þeir yrðu þá áfram
hluthafar og nytu sömu
kjara og þeir gerðu þegar
þeir gistu á Manor House
hótelinu.
Magnús Steinþórsson, hótel-
haldari í Englandi.
MAGNUS SELUR
MANOR HOUSE
Auglýsing Einars Gylfasonar
fyrir Domino’s á íslandi sem
valin var í bókina Graphis
Advertising á dögunum.
SLÓ í GEGN ÚTI
EN EKKIHEIMA
agt er að enginn sé
spámaður í eigin
föðurlandi. Það má
á vissan hátt segja um
Einar Gylfason, grafísk-
an hönnuð hjá Fíton aug-
lýsingastofunni. Fyrir
tveimur árum gerði hann
auglýsingu fyrir Domin-
o’s Pizza. Hún þótti frum-
leg og var tilnefnd til
verðlauna á auglýsinga-
hátíð ímarks, íslenska
markaðsklúbbsins.
Ekki sigraði auglýsing-
in í keppni ímarks. En
saga hennar var ekki öll.
Hún sló í gegn erlendis
þegar hún var nýlega val-
in til birtingar í bókinni
Graphis Advertising.
Bókin hefur að geyma al-
þjóðlegt yfirlit yfir bestu
auglýsingar síðustu
tveggja ára. Útgefandi
bókarinnar er svissneska
forlagið Graphis Press.
" V i ð o p 1i u m j
> i' /' n
n.
d
Y I a
t' I III o
www.oracle.is
TEYMI
Enabling the Inforrnation Age™
»
ortúni 24, 105 Reykjovllc
Slmi 561 8131
Brifilmi 56 2 8 1 31
N e if a n g Ieymi0oraclo.it
14