Frjáls verslun - 01.07.1996, Blaðsíða 58
Bjarney Harðardóttir, markaðsstjóri Póstgíró hjá Pósti og síma. „Eurógíró
ábyrgist að greiðsla sé ekki nema þrjá daga á leiðinni og á fjórða degi sjáist
hún á yfirliti viðkomandi. Kostnaður beggja, greiðanda og viðtakanda, er
þekktur. Það kemur sér vel í viðskiptum milli fyrirtækja þegar ákveða á
hver eigi að bera kostnaðinn af millifærslu greiðslunnar.“
urógíró er hlutafélag, sem
póstbankar og gíróbankar í
Evrópu hafa sett saman, sem
miðast við að senda greiðslur milli
gíróreikninga. Allar greiðslur eru raf-
rænar og tímasetning er mjög örugg.
Eurógíró ábyrgist að greiðsla sé ekki
nema þrjá daga á leiðinni og á fjórða
degi sjáist hún á yfirlitinu þínu. Annað
er að kostnaður beggja, greiðanda og
viðtakanda, er þekktur. Það kemur
sér vel í viðskiptum milli fyrirtækja
þegar ákveða eigi hver á að bera
kostnaðinn af millifærslu greiðslunn-
ar, — segir Bjamey Harðardóttir
markaðsstjóri fyrir Póstgíró. Euró-
gíró er nýjung hér á landi en hefur
verið starfrækt í Evrópu síðan 1992.
Þetta er hlutafélag í eigu póstbanka
og póststjóma í Evrópu, Norðurlönd
meðtalin, og eru aðildarlöndin 17 tals-
ins. Á þessu ári hefur Japan bæst við
og Chase Manhattan bankinn og
bandaríska póstþjónustan munu ger-
ast aðilar að Eurógíró á árinu.
„Þjónustukerfi Chase Manhattan
er mjög víðtækt og nær um Banda-
ríkin og víðar. Með innkomu Chase
Manhattan bætast við milljónir reikn-
ingshafa, austan- og vestanhafs,“
segir Bjamey.
Það, sem gerir þjónustu Eurógíró
sérstaka, er að tölvukerfi póstbank-
anna og gíróbankanna í aðildarlöndun-
um er tengt saman svo allar greiðslur
og upplýsingar fara skjalalaust á milli.
Einnig fara þær oftast beint til viðtak-
Rætt vib Bjarneyju Harðardóttur, markaðsstjóra hjá Pósti og síma:
EURÓGÍRÓ FLYTUR
FÉ ÁN MILLILIÐA
Eurógíró er nýjung hér á landi Tölvukerfi þóstbanka oggíróbanka í aðildarlönd-
unum eru tengd saman svo allar greiðslur og uþþlýsingar fara skjalalaust á milli
TEXTI: JÓHANNA Á. H. JÓHANNSDÓTTIR MYNDIR: KRISTÍN BOGADÓTTIR
58