Frjáls verslun - 01.07.1996, Blaðsíða 24
MIKIÐ HEFUR GENGIÐ Á
Fjölmiðlahasarinn síðastliðið eitt og hálft ár hefur ekki
hvað síst einkennst af miklum mannabreytingum á æðstu
stöðum á fjölmiðlunum. Segja má að ballið hafi byrjað í
febrúar 1995 þegar Hörður Einarsson, framkvæmdastjóri
og annar aðaleigandi DV, seldi Sveini R. Eyjólfssyni,
stjómarformanni DV, helmingshlut sinn í Frjálsri fjölmiðl-
un. Þar með var Sveinn orðinn einráður á DV
og langstærsti eigandinn.
Þessar sviptingar voru bara byrjunin á frétt-
um um mannabreytingar. Síðan hafa þær orðið
margar. Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ, hætti í
fyrrahaust sem ritstjóri DV eftir nær sextán ára
starf. Guðmundur Magnússon, fréttastjóri DV,
lét af störfum í fyrravor eftir um ársstarf sem
fréttastjóri DV en ráðning hans kom nokkuð á
óvart á sínum tíma. Enginn hefur verið ráðinn
ritstjóri í stað Ellerts.
Ulfar Steindórsson var ráðinn sjónvarps-
stjóri á Stöð 3 í fyrrahaust. Hann kom frá
Vinnslustöðinni í Eyjum þar sem hann var fjár-
málastjóri og helsti samstarfsmaður Sighvats
Bjarnasonar, framkvæmdastjóra og stjómar-
formanns SÍF. Heimir Karlsson, fyrrum íþróttafréttamað-
ur Stöðvar 2 og Ríkissjónvar-
psins, hefur verið ráðinn
sjónvarpsstjóri Stöðvar 3.
Hann tekur við um áramótin.
Ulfar hefur hins vegar verið ráðinn sem framkvæmda-
stjóri sölufyrirtækis SÍF í Barcelona á Spáni. Úlfar er því
farinn að vinna aftur undir stjórn - þótt óbein sé - vinar síns
og félaga, Sighvats Bjarnasonar úr Eyjum. Þá tók Bogi
Þór Siguroddsson, formaður ímarks og fyrrum markaðs-
stjóri Hans Petersen, við starfi markaðsstjóra Stöðvar 3
fyrir nokkrum mánuðum.
Breytingar á æðstu stöðum teygðu sig líka inn á Ríkis-
útvarpið. Þannig var Markús Örn Antonsson, fyrrum út-
varpsstjóri og borgarstjóri, ráðinn sem framkvæmdastjóri
Ríkisútvarpsins. Markús hafði þá unnið í um eitt ár, eða frá
sveitarstjórnarkosningunum vorið 1994, með Jóhanni
Briem í Myndbæ.
Á Morgunblaðinu urðu framkvæmdastjóraskipti sl
haust. Haraldur Sveinsson, framkvæmdastjóri blaðsins
um árabil, lét af störfum vegna aldurs. Við starfi hans tók
Hallgrímur Geirsson, lögmaður og stjómarformaður Ár-
vakurs um níu ára skeið. Árvakur er útgáfufélag Morgun-
blaðsins. Haraldur tók hins vegar við sem stjórnarformað-
ur í Árvakri af Hallgrími.
Um mitt sumar í fyrra var farið að kvisast út í fjölmiðla-
heiminum að Eyjólfur Sveinsson, 32 ára aðstoðarmaður
forsætisráðherra, Davíðs Oddssonar, væri að taka við
starfi framkvæmdastjóra DV, Frjálsrar fjölmiðlunar hf.
Einhver mesta
breytingin í fjöl-
miðlaheiminum er
brotthvarf Ellerts
B. Schram af DV.
FORSÍÐUEFNI
Eyjólfur, sem er sonur Sveins R. Eyjólfssonar, aðaleig-
anda DV, tók síðan formlega við sem framkvæmdastjóri
um sl. áramót.
Þegar Stöð 3 blés í herlúðra sl. haust svaraði íslenska
útvarpsfélagið fyrir sig með því að dusta rykið af sjón-
varpsstöðinni Sýn. Páll Magnússon, fyrrum sjónvarps-
stjóri Stöðvar 2, var ráðinn sjónvarpsstjóri
Sýnar.
Segja má að þetta ár hafí hafist eins og það
síðasta endaði í fjölmiðlaheiminum. Fyrsta
nýársbomban féll þegar aðeins nokkrir dagar
voru liðnir af árinu, Jafet Ólafsson, útvar-
psstjóri íslenska útvarpsfélagsins, lét skyndi-
lega af störfum og tók aðaleigandi félagsins, og
stjómarformaður þess, Jón Ólafsson, við dag-
legum rekstri. Þá má geta þess að einn helsti
íjármálamaður Islenska útvarpsfélagsins til
nokkurra ára, Bjami Kristjánsson fjármála-
stjóri, er hættur hjá félaginu.
Næstu óvæntu sviptingamar á fjölmiðlamar-
kaðnum urðu þegar Fróði tilkynnti að hann ætlaði
að hefja útgáfu á tímaritinu Séð og heyrt í mars.
Samhliða þeirri útgáfu urðu nokkrar hrókeringar í ritstjómar-
liði Fróða. Manniífsritstjóramir, Kristján Þorvaldsson og
Bjami Brynjólfsson, tóku við ritstjóm Séð og heyrt.
Þórarinn Jón Magnússon, ritstjóri Vikunnar og Húsa og
híbýla til margra ára, tók við Mannlífi. Elín Albertsdóttir,
blaðamaður á DV, tók í framhaldinu við ritstjóm Húsa og
híbýla. Samhliða var ákveðið að gefa Vikuna ekki út nema
þrisvar á ári. Um þetta leyti hætti markaðsstjóri Fróða til
nokkurra ára, Helgi Rúnar Óskarsson, og hóf rekstur á
Subway skyndibitakeðjunni í Kaupmannahöfn.
Verulegar mannabreytingar hafa orðið við sameiningu
Dags á Akureyri og Tímans í Dag-Tímann. Ritstjórar
Dags, bræðurnir Jóhann Ólafur og Óskar Þór Halldórs-
synir, sögðu upp störfum um leið og fyrir lá að Stefán Jón
Hafstein hefði verið ráðinn ritstjóri hins nýja blaðs. Bræð-
urnir voru beðnir um að taka við ritstjórn Dags fyrir
rúmum tveimur árum þegar mjög hallaði undan fæti í
rekstri blaðsins. Hafði þeim tekist að rétta reksturinn við -
en það dugði ekki til að þeir héldu ritstjórastöðunum.
Valgerður Jóhannsdóttir, fréttamaður á Ríkisútvarpinu,
hefur verið ráðin fréttastjóri Dags-Tímans og Hildur
Helga Sigurðardóttir, fréttaritari Ríkissjónvarpsins í Lon-
don um langt skeið, hefur verið ráðin ritstjómarfulltrúi.
Loks má geta þess að ritstjóri Tímans í Reykjavík, Jón
Kristjánsson, alþingismaður Austfirðinga, lét af ritstjóra-
störfunum með tilkomu Dags-Tímans. En Birgir
Guðmundsson, fréttastjóri Tímans, flytur hins vegar
norður yfir heiðar til Akureyrar og gerist aðstoðarritstjóri
Dags-Tímans.
24