Frjáls verslun - 01.07.1996, Blaðsíða 33
Athyglisvert er að skoða
hópinn millistjómendur, eða
næstráðendur eins og við höf-
um einnig nefnt hann. Tekjur
millistjórnenda eru ekki langt
frá tekjum forstjóra. í úrtakinu
er að vísu mikið um þekkta milli-
stjómendur í stórfyrirtækjum
sem flestir eru titlaðir fram-
kvæmdastjórar á sínu sviði.
NÆSTRÁÐENDUR SJALDAN MEÐ
UNDIR 400 ÞÚS. Á MÁNUÐI
Meðaltekjur millistjórnenda
eru að jafnaði um 582 þúsund
krónur, samkvæmt könnuninni.
Hún gefur jafnframt vísbend-
ingu um að tekjur háttsetts
millistjómanda hjá stóru og
traustu fyrirtæki séu vart undir
400 þúsund krónum á mánuði og
að tekjurnar liggi oftast á bilinu
frá 450 til 550 þúsund á mánuði.
Vert er að hafa í huga að milli-
stjórnendur hafa oftast bfla frá
fyrirtækjunum til umráða, líkt
og forstjórar, og fyrir vikið
reiknast á þá tekjur af þessum hlunn-
indum. Ætla verður að bflar milli-
stjórnenda séu ekki eins dýrir og bflar
forstjóranna og um lægri tekjur af
þessum hlunnindum sé að ræða hjá
þeim. Þetta er þó mismun-
andi.
VERKFRÆÐINGAR
FUÚGA UPP
Sá starfshópur, sem
hækkar mest í tekjum í
könnuninni, er verkfræð-
ingar og arkitektar. Tekjur
þeirra jukust að jafnaði um
12,3% umfram launavísitölu
en hjá þeim hefur verið
stöðugur samdráttur í tekj-
Meöaltekjur einstakra hópa
(Fjöldi = Eingöngu þeir sem eru í samanburðarúrtaki)
Fj. Nafn tekjuhóps________Meðalt. á mán. '95
10 Lyfsalar
59 Kunnir athafnamenn
9 Tannréttingar
50 Forstjórar í fyrirt.
40 Stjórn. peningastofn.
9 Millistjórnendur
40 Lögmenn
7 Flugstjórar
19 Endurskoðendur
16 Læknar
9 Stjórn. ríkisfyrirtækja
9 Sveitarstjórnarmenn
13 Kunnir embættismenn
20 Ráðherrar og þingm.
13 Alm. tannlæknar
7 Forsvarsm. auglst.
14 Verkfræðingar
11 Aðilar vinnumark.
5 Prestar
23 Listamenn
mm
Lyfsalar, sem reka aptótekin undir eigin nafni,
eru tekjuhæsti starfshópurinn í könnuninni.
um í þessari könnun á undanförnum
árum. Aukin þensla í þjóðfélaginu er
líklegasta skýringin á auknum tekjum
verkfræðinga- og arkitekta. Þegar
hjól atvinnulífsins snúast hraðar kem-
Forstjórabílar hækka tekjur forstjóranna, enda eru
bílarnir hlunnindi sem telja ber fram.
ur það hvað fyrst fram í bygging-
ariðnaðinum.
Þá eru það tannlæknar og
prestar. Tekjur almennra tann-
lækna hækkuðu að jafnaði um
5,8% umfram launavísitölu á
síðasta ári en síðastliðin ár hafa
tekjur þeirra lækkað verulega.
Þetta er á margan hátt athyglis-
verð breyting ekki síst þar sem
tannlæknum hefur fjölgað og
samkeppni er sífellt harðari á
milli þeirra. En viðskiptin eru
greinilega meiri. Þá halda tekjur
presta áfram að hækka en
prestar voru hástökkvaramir í
könnuninni í fyrra. Þeir hækk-
uðu þá mesta allra starfshópa
umfram launavísitölu.
LISTAMENN 0G LYFSALAR
Starfshópar, semlækkamest
í tekjum að þessu sinni, eru
listamenn, lyfsalar og forsvars-
menn auglýsingastofa. Minna
má á að lyfsalar hafa hækkað og
lækkað á vrxl á undanförnum ár-
um. Ætla má að meðaltekjur lyf-
sala eigi eftir að lækka á næstu árum
vegna aukins frelsis í faginu; apótek-
um er að fjölga og samkeppni að
harðna. Engu að síður era lyfsalar sá
starfshópur sem er með hæstar
meðaltekjur í könnuninni
núna. Lyfsalar telja rekstur
apóteka sinna fram undir
eigin nafni og endurspegla
tekjur lyfsala í raun afkomu
apótekanna.
Loks er vert að vekja at-
hygli á að tveir starfshópar
voru felldir niður í könnun-
inni núna; stjómarmenn í
fyrirtækjum og sýslumenn.
Búið er að færa stjómar-
menn í fyrirtækjum yfir í
flokk kunnra athafnamanna.
FORSTJÓRABÍLARNIR HÆKKA TEKJURNAR
Ef við gefum okkur að flestir forstjórar séu á fyrirtækjabíium sem kosta á bilinu 2 til
4 milljónir króna er Ijóst að þeir eru að fá hlunnindatekjur á sig sem nema frá 400 til
800 þúsund krónum á ári, eða um 34 til 67 þúsund krónum á mánuði. Hafi forstjóri
500 þúsund í laun á mánuði, og auk þess afnot af 4 milljóna króna bíl fyrirtækis,
nema skattskyldar tekjur hans um 567 þúsund krónum á mánuði.
33