Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1996, Síða 40

Frjáls verslun - 01.07.1996, Síða 40
RÓMANTÍSKT KOKKTEILBOÐ Örlög Frosta voru að hluta til ráðin þegar hann fór, ásamt fleiri viðskipta- fræðinemum, í svokallaða vísindaferð upp í Plastprent. Þessar ferðir eru famar undir því yfirskini að nemendur eigi að kynna sér starfsemi fyrirtækja en eru í framkvæmd dulbúið kokkteil- boð. í þessu kokkteilboði hitti Frosti stúlku sem starfaði hjá Plastprenti og heitir Auður Svanhvít Sigurðardóttir. Hún er fædd. 9.10., 1966. Það varð ást við fyrstu sýn og í dag búa þau við Álfatún í Kópavogi og eiga saman tvö böm, Sindra f. 1991 og Sóleyju f. 1992. VID NÁM í L0ND0N OG RÁÐGJÖF Á ÍSLANDI Eftir lokapróf í Háskólanum lá leið Frosta til London þar sem hann hóf nám við London Business School og lauk þaðan MBA gráðu í stjórnunar- fræði árið 1991. Meðan Frosti sýslaði við að læra tök á ýmsum gerðum stjómtauma við LBS sótti Auður Svanhvít tíma í fatahönnun en hún er annálaður saumavíkingur og hefur til þessa dags fengist töluvert við saumaskap, meðal annars saumað brúðarkjóla af mikilli snilld svo ap að- dáun hefur víða vakið. Auk þess lagði hún stund á hattagerð undir leiðsögn hattameistara drottningarmóðurinn- ar gömlu. Þegar Frosti kom heim frá námi fór hann að vinna hjá Ráðgjöf Kaupþings. Eitt hans stærsta verkefni þar var að vinna náið með forsvarsmönnum Marels hf. sem stefndu að því að opna fyrirtækið almenningi og skrá það á Verðbréfaþinginu. Sú aðgerð tókst mjög vel og þakka forráðamenn Mar- el það ekki síst vandlegri undirbún- ingsvinnu Frosta og félaga hans hjá Kaupþingi, sem meðal annars fólst í því að verðleggja fyrirtækið rétt, en að sögn fjármálaspekinga er það lykil- atriði við aðgerð sem þessa að rétt verð standi á verðmiðan- um. MAREL 0G SKJÁFAX Eftir að því verkefni lauk hélt Frosti ekki beina leið upp eftir metorðastiganum heldur fór að vinna fyrir h'tið og algerlega óþekkt fyrirtæki sem hét þá Tölvusamskipti. Þar voru í for- svari Pétur Blöndal, sem á þessum tíma var að selja Kaup- þing, og Elvar Guðjónsson og þeir fengu Frosta til liðs við sig. Verkefni hans þar fólust í því að markaðssetja það sem síðan varð þekkt sem Skjáfax og hefur náð nokkurri fótfestu á tölvu- markaðnum, bæði hér heima og erlendis. Mörgum þótti þar sótt af kappi fremur en forsjá og töldu ólíklegt að íslenskir hug- búnaðarhöfundar hefðu margt fram að færa sem stæðist hinum stóra heimi snúning. Frosti leysti verkefnið með miklum glæsibrag og í dag vita allir í tölvubransanum hvað Skjáfax er. Þegar þessu verkefni lauk réðst Frosti til starfa hjá Marel þar sem hann var fjármálastjóri um tveggja ára skeið og fór hamförum innan fyrir- tækisins. Að loknu Mareltímabilinu settist hann síðan í stól forstjóra Nýherja og munu flestir sammála um að hér fari ungur maður á uppleið sem hefur þegar að baki glæsilegan starfs- feril þótt tiltölulega stutt sé síðan hann lauk námi. BARÁTTUGLAÐUR KEPPNISMAÐUR Frosta er lýst svo að hann sé eld- hugi. Hér fer mjög baráttuglaður maður sem sér allt lífið fyrir sér sem verkefni sem þurfi að leysa. Sumir vinir hans segja að hann geri allt að Emil kvikmyndagerðarmann, Ólaf Stein Pálsson sálfræðing og Þorbjöm Tjörva sem m.a. hefur fengist við blaðaútgáfu. Hann fór síðan í Menntaskól- ann við Sund og lauk prófi þaðan 1982 þegar hippaárin voru að baki og pönkið buldi um alla gangana í stað latneskra skóla- söngva. Frosti hélt síðan til náms í viðskiptafræði í Háskóla íslands og tók til óspilltra mál- anna við að móta framtíð sína. Frosti var þegar á námsárunum glaðlyndur og málgefinn og þótti liðtækt samkvæmisljón sem einnig tók virkan þátt í félagslífi stúdenta og var meðal annars formaður Mágusar, félags við- skiptafræðinema. Á skrifstofu sinni. . . FYRRUM MEISTARI í VEGGJATENNIS Frosti er annálaður keppnismaður. Hann varð íslandsmeistari í veggjatennis fyrir nokkrum árum. Auk þess hefur hann keppt í svifdrekaflugi, bæði hér heima og erlendis. Þá er hann ákafur hjólreiðamaður og keppti á fyrstu íslandsmótunum í hjólreiðum á árunum 1978 til 1980. Núna leggur hann mesta áherslu á golf og almenna líkamsrækt til að vera í formi. 40

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.