Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1996, Side 61

Frjáls verslun - 01.07.1996, Side 61
TAKISIGA! um en flestar aðrarþjóðir sem tengjast arftaka GATT, Alþjóðaviðskiþtastofnunni, hluta innflutnings síns en aðrir. Frjáls heimsviðskipti þýða aukna velmegun elsti ávinningur Islands af aðild að Alþjóðaviðskiptastofnun- inni, WTO, er réttaröryggið og leikreglurnar sem samningar stofnunarinnar hafa í för með sér. Hvað varðar bein áhrif samningsins á ísland þá þýðir þetta aukin tækifæri fyrir útflutningsgreinar okkar og auk- in tækifæri vegna þess að tollar lækka á hefðbundnum mörkuðum og nýir markaðir opnast. Það vekur hins veg- ar athygli að íslendingar hafa ekki gert úttekt á þeim tækifærum sem samningamir hafa í för með sér. FRJÁLSLYNDISSTEFNA í MILLIRÍKJAVIÐSKIPTUM EN... ísland er mjög háð alþjóðlegum við- skiptum og hefur augljósan hag af frelsi á því sviði. Hlutfall útflutn- ingstekna er hér hátt, sem að stærstum hluta kemur til vegna sjávarafurða, og mestur hluti iðn- varnings, stór hluti landbúnaðar- afurða, allar olíur og olíuvörur eru innfluttar. íslensk stjórnvöld hafa á seinni árum fylgt frjálslyndisstefnu í milliríkjavið- skiptum og í úttekt GATT stofnunar- innar árið 1992 (Eftirlit með við- skiptastefnu) var íslandi lýst sem MYNDIR: KRISTÍN BOGADÓTTIR lágtollalandi sem hefði tiltölulega lítil opinber afskipti af atvinnulífinu ef landbúnaðarframleiðsla væri undan- skilin. Hér eru tiltölulega lágir tollar, engum boðnir hærri tollar en bestu kjararéttindin, styrkir til iðnaðar eru lágir miðað við nágrannaríkin og ís- land er ekki aðili að MFA sem er samningur um kvóta á innflutningi á vefnaðarvörum og klæðnaði. ísland hefur aldrei beitt grein XIX sem heimilar vemdaraðgerðir, og einung- is einu sinni hefur verið beitt jöfnun- artollum gegn undirboðum eða styrkjum. Greiðslujöfnuðarákvæði GATT hefur heldur aldrei verið beitt. f úttekt GATT kemur einnig fram að notkun á tæknilegum viðskiptahindr- unum er mjög sambærileg við það sem gerist í ESB. Það vekur hins- vegar athygli hve Htill hluti af inn- flutningi okkar er tollbundinn eða einungis 65%, á meðan að flest ríki OECD eru með 99-100%. Toll- bindingar eru há- markstollar sem ríki skuldbindur sig til að fara ekki yfir nema með leyfi Alþjóðavið- skiptastofnunar- innar þannig að ís- lensk stjómvöld eiga möguleika á því að hækka tolla upp úr öllu valdi á 35% af innflutningi 61 Greinarhöfundur, Guðlaugur Þór Þórðarson, útskrifast í haust úr stjórnmálafræði með viðskiþtafræði sem aukagrein. Lokaritgerð hans er um Alþjóðaviðskiptastofnunina, WTO, og áhrif hennar á ísland.

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.