Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1996, Qupperneq 69

Frjáls verslun - 01.07.1996, Qupperneq 69
Stefnan fundin, mótuð - og tekin.Yfirleitt er talað um að yfirstjórnendur móti stefnu fyrirtækis. Séu þeir einu stefnu- mótendurnir nýtist styrkur stefnustjórnunar fyrirtækinu ekki sem skyldi. Undanfari mótunar samkeppnisáætlunar eru greiningar á ytra og innra umhverfi fyrirtækisins, þar sem leitað er m.a. að styrk og veikleika fyrir- tækisins og ógnunum og tækifærum á markaðn- um. Áherslan er alltaf á hvaða árangri þú viljir ná með viðskiptavininum, vörum og þjónustu, hver markaðurinn sé og hvernig best megi styrkja stöðu fyrirtækis- ins gagnvart keppinaut- unum. Þegar árangurinn hef- ur verið ákveðinn með setningu markmiða og stefnumiða liggur beint við að móta stefnu og gera áætlanir. STEFNA í markmiðum og stefnumiðum beinist at- hyglin að árangrinum sem á að ná. í stefnuyfir- lýsingum (e. policy stat- ement) er sjónum aftur á móti beint að þeim leið- um eða skilyrðum sem fullnægja þarf til að árangur náist. Við innsiglingar í hafnir eru t.d. merki í landi (stefnumið) sem skips- stjómendur nota til að forðast grynn- ingar, sker og boða á leiðinni inn og út úr höfninni. M.ö.o. þá er hafnar- mynnið „árangurinn“ sem á að ná og leiðin er vörðuð innsiglingarmerkj- um, stefnumiðum, sem segja hvaða stefnu eigi að taka á hverjum stað til að komast áfallalaust á áfangastað. í þessu dæmi er stefnan tekin á mið sem sést frá skipinu. í fyrirtækjum eru einmitt margar stefnur miðaðar við markmið eða stefnumið. Þær gefa vísbendingar urn ytri mörk þess sem fyrirtækið telur rétt að vinna innan, t.d. „bjóða ætíð bestu vöru og þjón- ustu sem völ er á hverju sinni.“ Önnur aðferð, sem skipsstjómendur nota til að komast leiðar sinnar, er að velja þá átt sem á að sigla í. Sá, sem er við stýrið hverju sinni, ber ábyrgð á því að hvika ekki frá kompásstrikinu. Einnig gæti skiptsjórinn haft hugmyndir (stefnu) um heppilegan ganghr- aða skipsins. M.ö.o. þá er stefnunni haldið án þess að notað sé viðmið utan borðstokks skips- ins. Dæmi um slíka stefnu innan fyrirtækja gætiverið: „Gerastarfs- fólk hæfara með því að auka þekkingu þess og þjálfun." Fylgi fyrirtæki þessari stefnu vinnur það að árangri sem leynist handan „sjóndeildar- hringsins". Yfirleitt er talað um að yfirstjómendur móti stefnur fyrirtækisins. Séu þeir einu stefnumót- endurnir nýtist styrkur stefnustjómunar ekki fyrirtækinu sem skyldi. Stjómendur sumra fyrir- tækja segja jafnvel að fyrirtæki þeirra séu það lítil að slík stjómun rúmist ekki intian veggja þeirra. Þessir stjórnendur kvarta á hinn bóginn oft yfir að þeir séu á þönum út um allt fyrirtækið við að setja „lekabyttur“ undir það sem miður fer í starfsem- inni. Hugsanlega er víðtæk stefnu- stjórnun einn liður í lausninni. N FYRIRTÆKJA lýsingu á því hvað þurfi að hafa í huga, hvað megi gera og hvað eigi að gera 69
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.