Frjáls verslun - 01.03.1998, Qupperneq 11
FRÉTTIR
Qyrirtækið Sindri hélt athyglisverða ráðstefnu í
Perlunni á dögunum undir yfirskriftinni „Stál og
málmar sem byggingarefni”. Alls fluttu níu fyrirles-
arar erindi á ráðstefnunni, innlendir sem erlendir. Víða var
komið við. Rætt var meðal annars um málma og arkitektúr,
málmklæðningar, stálburðarvirki og eldvarnir á stálvirkjum.
Fjórir fyrirlesaranna voru útlendir. Ráðstefhan var haldin að
morgni föstudagsins 20. mars og var boðið upp á morgun-
verð áður en fyrirlestrar hófust.
SINDRIIPERLUNNI
Ingimundur Sveinsson arkitekt flutti fyrirlestur um málma
og arkitektúr á ráðstefnunni.
Sindri sýndi sþortbif-
reið af DeLorean gerð.
Bílar þessir voru fram-
leiddir á árunum 1981
og 1982 og eru einu
fjöldaframleiddu bílarn-
ir úr ryðfríu stáli. Stál-
ið kom frá einni af
verksmiðjum Avesta
Sheffield sem er sam-
starfsaðili Sindra.
Bergþór Konráðsson, forstjóri Sindra, ávarþargesti í tilefni bygging-
ardaga Sindra í Perlunni. Myndir: Jóhannes Long.
70. STARFSÁRIÐ
Oðalfundur Olís var hald-
inn 19. mars sl. Hagnað-
ur félagsins á síðasta ári,
70. starfsárinu, nam 121 milljón
króna. Tekjur félagsins námu um
7,8 milljörðum og arðsemi eigin-
ljár var 5,6%. Tveir hluthafar eiga
71% í félaginu. Þeir eru Texaco í
Danmörku og Olíufélagið og eiga
bæði félögin 35,5% hlut.
Einar Benediktsson, for-
stjóri Olís, Gísli Baldur
Garðarsson, stjórnarfor-
maður Olís, og Geir
Magnússonjorstjóri Olíu-
félagsins, á aðalfundi
Olís. Olíufélagið er, ásamt
Texaco í Danmörku,
stærsti hluthafinn í Olís.
Mynd: Kristján Maack.
FVG-ZIMSEN
Látið TVG-Zimsen
sjá um flutninginn
frá upphafi til enda
Reykjavik:
Héðinsgötu 1-3 • Simi 5 600 700 • Bréfsimi 5 600 780
Akureyri:
Oddeyrarskáli, 600 Akureyri • Slmi 462 1727 • Bréfsími 462 7227
Netfang TVG-Zimsen er: http://www.tvg.is
11