Frjáls verslun - 01.03.1998, Blaðsíða 35
Gunnar Orn Kristinsson, forstjóri SIF
Jon Reymr Magnusson, forstjori SR-mjols
Olafur Olafsson, forstjori Samskipa
Öll búa þau yfir verulegri þekkingu á sjáv-
arútvegi og eru í fremstu röð á sínu sviði
hérlendis. Atlantic Coast sérhæfir sig í
frystingu á sfld. Arleg velta þess nemur um
1,5 til 2 milljörðum króna. Miklar vonir eru
bundnar við að umsvif Atlantic Coast auk-
ist verulega á næstu árum eftir því sem
fiskistofnar við austurströnd Bandaríkj-
anna ná sér á strik - en þegar hafa sfldar- og
makrílstofnar stækkað og styrkst til muna.
SR-mjöl, Samheiji og Sfldarvinnslan
stofnuðu hlutafélagið Uhafssjávarfang síð-
astliðið haúst um flárfestingar og rekstur
erlendis á sviði útgerðar, landvinnslu og
sölu sjávarafurða. Kaupin á Atlantic Coast
Fisheries eru ánægjulegt skref í stuttri
sögu Úthafssjávarfangs. Benedikt Sveins-
son, stjórnarformaður SR-mjöls, sagði í
samtali við Morgunblaðið þegar sagt var
frá kaupunum: „Við sjáum þarna mögu-
leika á að koma inn í þetta fyrirtæki þar
sem við getum nýtt þekkingu okkar Islend-
inga í sjávarútvegi.” Þetta er kjarni málsins
og grunnurinn að útrás íslensks viðskipta-
lífs til útlanda.
KAUPIN Á J.B. DELPIERRE
Gunnar Örn Kristinsson, forstjóri SIF,
segir að samningaviðræður um kaupin á
J.B. Delpierre hefðu staðið yfir í tæpt ár.
SIF greiðir um 60 milljónir króna fyrir fyr-
irtækið en skuldbindur sig jafnlramt til að
leggja til 240 milljóna króna viðbótarhluta-
fé inn í fyrirtækið til að bæta eiginflárstöðu
þess sem er neikvæð. Við kaupin eykst
velta SÍF-samstæðunnar úr tæpum 12 millj-
örðum í um 17 milljarða.
Kaup SIF á franska fyrirtækinu J.B.
Delpierre styrkja mjög stöðu SÍF í Frakk-
landi og tryggja fyrirtækinu öflugan að-
gang að öllum helstu matvöruverslunum í
Frakklandi. Um 85% af allri sölu J.B. Delpi-
erre hafa farið beint inn í frönsku stór-
markaða-keðjurnar. Inn í þær er frekar
erfitt að komast og þurfa framleiðendur
helst að bjóða upp á nokkurt úrval af mat-
vælum í sama flokki - en það á SÍF auðvelt
með að gera.
Með kaupunum á J.B. Delpierre og
samrekstri við Nord Morue verður SÍF
stærsta fyrirtækið í ffamleiðslu og sölu
kældra sjávarafúrða á Frakklandsmarkaði.
Þegar rætt er um kældar sjávarafurðir er
átt við vörur sem geymdar eru við 0 til 4
gráðu hita; þetta eru vörur eins og reyktur
lax og reykt sfld, saltfiskur og kavíar. SÍF á
ennfremur fyrirtæki í Kanada og Noregi
og styrkist staða þeirra til muna vegna
hins öfluga dreifingarkerfis J.B. Delpierre
í Frakklandi. Allar vinna þessar fjárfesting-
ar núna vel saman.
J.B. Delpierre er rótgróið fyrirtæki. Það
var stofnað árið 1912 og rekið af Delpierre-
fjölskyldunni þar til Nord-Est samsteypan
keypti 67% hlutabréfa þess árið 1992. Á ár-
unum ‘92 til “96 var það rekið með nokkru
tapi. En á síðasta ári tókst að snúa dæminu
við og reka það með hagnaði. SIF kaupir
öll hlutabréfin í fyrirtækinu á um 5 milljón-
ir franka, eða um 60 milljónir króna, og
skuldbindur sig jafhframt til að leggja fram
20 milljónir franka, um 240 milljónir króna,
í viðbótarhlutafé. SU
fest kauþ á J.B. Delþierre og SR-Mjöl, Samherji og
hlut í Atlantic Coast Fisheries.
35