Frjáls verslun - 01.03.1998, Side 49
HUGBÚNAÐUR HF./HB INTERNATIONAL
www.hugbun.is
Hugbúnaður var stofnað 1984 en í dag
starfa þar 25 manns. Fyrirtækið hefur selt
HBX-PAD hugbúnaðinn til fjölþjóðafyrir-
tækja í 50 löndum. Þess utan hefur fyrirtæk-
ið framleitt hóplausnir fyrir veitingastaði,
bensínstöðvar, skyndibitastaði og margvís-
legan atvinnurekstur og selt undir nafninu
HB-GPoS. Meðal þekktustu fyrirtækja sem
nýta þennan búnað er minjagripasalan á
Highbury Stadium en á sínum markaði er
HB International meðal fimm stærstu selj-
enda slíks búnaðar. Framkvæmdastjóri
Hugbúnaðar er Páll Hjaltason.
GARRI
Garri er ungt fyrirtæki sem framleiðir
hugbúnað af ýmsu tagi en leggur vaxandi
áherslu á viðskiptahugbúnaðinn Garra
sem hefur þegar verið seldur til 300 fyrir-
tækja. Garri er alíslenskur hugbúnaður
sem er forritaður lrá grunni hérlendis.
Starfsmenn eru fjórir og framkvæmda-
stjóri er Bjarni Einarsson.
FERLI www.itn.is/ferli
Ferli hefur náð miklum árangri með
hugbúnað sem auðveldar fyrirtækj-
um greiðsludreifingu og heldur
utan um raðgreiðslur og boð-
greiðslur og skuldbreytingar ef við-
skiptavinir óska þess.
Þessi hugbúnaður hefur, undir nafninu
Boðsýn, náð verulegri útbreiðslu hjá ís-
lenskum fyrirtækjum sem selja vörur með
slíku fyrirkomulagi en fyrirtækið hyggst
markaðssetja búnaðinn erlendis þar sem
boðgreiðslur og raðgreiðslur eru ekki eins
útbreiddar og á Islandi.
Starfsmenn eru þrír.
TAUGAGREINING www.nervus.is
Taugagreining framleiðir hugbúnað til
þess að vinna úr og skilgreina heilalínurit.
Fyrirtækið hefur sett á markað heildstæða
línu af slíkum búnaði og heitir hugbúnað-
urinn Nervus og vélbúnaðurinn Magnus.
Fyrirtækið framleiðir bæði tækjabúnað og
hugbúnað.
Þáttaskil urðu í starfsemi fyrirtækisins
með samstarfssamningi við breska fyrir-
tækið Medelec Ltd. Medelec mun
annast markaðssetningu og dreif-
ingu á framleiðslu Taugagreiningar
á heimsmarkaði en framleiðsla
Taugagreiningar hefur þegar hlotið
góðar viðtökur á markaði í Skandinavíu.
Starfsmenn hjá Taugagreiningu eru 13
og framkvæmdastjóri er Egill Másson.
NAVÍS-LANDSTEINAR www. landsteinar.is
Navís-Landsteinar hf. varð til þegar Na-
vís hf og hluti Landsteina ehf. sameinuðust
um áramótin.
Fyrirtækið er dótturfyrirtæki Land-
steina International sem starfrækir þrjú
önnur sölufyrirtæki á Navision Financi-
als, í Danmörku, Bretlandi og á Jersey,
Grensásvegur 10 • Sími 503 3050 • Bréfasími 568 7 115 • http://www.ajs.is • sala@ajs.is
49