Frjáls verslun - 01.03.1998, Page 66
Ingimar Sigurðsson, deiklarstjóri hjá Tryggingamiðstöðinni,
kann vel við sig útí i náttúrunni.
FV-mynd: Kristín Bogadóttir.
itt starf er að vera
deildarstjóri mark-
aðsdeildar. Undir
hana fellur sala á atvinnu-
rekstrartryggingum, endur-
tryggingar, umboðsmenn,
auglýsingar og almennings-
tengsl og sitthvað fleira.
Tryggingamiðstöðin er þriðja
stærsta tryggingafélagið á
TEXTI: PÁLL ÁSGEIR ÁSGEIRSSON
markaðnum með iðgjaldatekj-
ur upp á um 2,5 milljarða,”
segir Ingimar Sigurðsson hjá
Tryggingamiðstöðinni.
Tryggingamiðstöðin varð
40 ára á árinu 1997. í tilefni
afmælisins gaf fyrirtækið út
veglega matreiðslubók og
sendi öllum viðskiptavinum
sínum og velunnurum. Bókin
heitir Matartimi og vakti
verðskuldaða aðdáun. Skúli
Hansen matreiðslumaður sá
um uppskriftirnar í bókinni
en það kom í hlut Ingimars að
vera formaður útgáfunefhdar
bókarinnar fyrir hönd fyrir-
tækisins.
Tryggingamiðstöðin er til
húsa við Aðalstræti 6-8 í
Reykjavík en er með 30 um-
boðsmenn um land allt, þar af
fjórar skrifstofur með eigin
starfsmönnum. Upphaflega
var fyrirtækið stofnað af fyrir-
tækjum og einstaklingum inn-
an Sölumiðstöðvar hraðirystí-
húsanna sem töldu hag sín-
um betur borgið með þessum
hættí. Af því leiddi að fyrstu
áratugina var starfsemi fé-
lagsins einkum á sviði skipa-
trygginga, farmtrygginga og
brunatrygginga á lausafé fyr-
ir fyrirtæki í sjávarútvegi og
fiskvinnslu.
„Þetta er löngu breytt.
Starfsemi okkar er orðin
hefðbundin að flestu leytí. Við
erum alhliða vátryggingafé-
lag, sem tekur þátt í hvers-
kyns tryggingastarfsemi.
Enn eimir eftir af þeim
grunni, sem félagið upphaf-
lega byggði á, þvf okkar hlut-
ur í skipatryggingum er enn
mjög stór. Við tryggjum um
helming þeirra fiskiskipa sem
eru yfir 100 tonn og skammt
er síðan bílatryggingar fóru
að vega álíka mikið í iðgjöld-
unum eins og sjótryggingar.”
Tryggingamiðstöðin var
lengst af lokað hlutafélag en
fyrir þremur árum var félagið
opnað og geta menn nú selt
og keypt í félaginu án nokk-
urra takmarkana.
Ingimar er fæddur og al-
inn upp á Blönduósi. Hann
lauk verslunarprófi frá Versl-
unarskóla Islands árið 1973
og starfaði næstu árin hjá
Kaupfélaginu á Blönduósi.
1977 hóf hann störf hjá
Tryggingamiðstöðinni og
hefur starfað þar síðan, þar af
síðustu 10 árin sem deildar-
stjóri.
Ingimar hefur alltaf starfað
mikið að félagsmálum og var
virkur innan Junior Chamber
hreyfingarinnar árum saman
og var m.a. landsforseti þeirra
samtaka. I dag er hann virkur
á öðrum vettvangi félags-
mála, annars vegar í Sjálf-
stæðisfélagi Seltirninga og
einnig sem formaður Knatt-
spyrnudeildar Gróttu.
„Eg sinni auk þess al-
mennum heimilisstörfum í
mínum frítíma og allt sem við-
kemur matargerð og þess
háttar finnst mér mjög áhuga-
vert.”
Eiginkona Ingimars heitír
Guðrún Hrönn Einarsdóttir
hárgreiðslumeistari og þau
eiga tvo syni, 6 og 11 ára.
Guðrún rekur sína eigin stofu
í Hafnarstrætí.
Ingimar segist hafa mjög
gaman af því að vera gestgjafi
og leggja sig allan fram við
matargerð og allt það sem
þarf að gera tíl þess að gest-
um líði vel. Sem dæmi má
nefna árlegt síldarboð sem
hann býður tíl i lok janúar fýr-
ir vini og vinnufélaga. Þá
koma félagarnir saman og
borða síld frá því snemma á
laugardagsmorgni tíl hádeg-
is. Alla réttí, sem á borðum
eru þá hefur Ingimar búið tíl
frá grunni.
„Þess utan líður mér alltaf
vel úti í náttúrunni. Eg þarf
ekki endilega að klífa fjöll eða
fara í langar göngur. Það er
nóg að vera útí.” 59
INGIMAR SIGURÐSSON,
TRYGGINGAMIDSTÖDINNI
66